Rannsóknarblaðamannateymi norska ríkissjónvarpsins, NRK, hefur í tvö ár unnið að fréttaskýringaþáttum um laxeldi. Fyrsti þáttur af þremur verður sýndur þriðjudaginn 4. nóvember.

Þáttaröðin heitir Laxalandið og er kynnt með þessum orðum á vef NRK:

„Sjókvíeldi á laxi er orðin arðbær atvinnugrein. En undir yfirborðinu er að finna ómælda þjáningu, átök og ólöglegan útflutning. Höfum við raunverulega stjórn á stöðunni?“

Við teljum öruggt að starfsemi norsku sjókvíaeldisfyrirtækjanna á Íslandi muni koma við sögu.

Þessir þættir koma væntanlega til sýninga hjá RÚV síðar í vetur.

Það er hægt að horfa á þá á vef NRK.