Við fögnum kröftugum umræðum um háskann af opnu sjókvíaeldi. Gísli Sigurðsson bendir hér á lausnina. Í greininni segir bendir Gísli á ógnina sem stafar af eldi í opnum sjókvíum og þá staðreynd að norsk stjórnvöld hafa markað stefnu um að stöðva þessa þróun:
„Það er óumdeilt að laxeldi í opnum sjókvíum veldur miklum umhverfisskaða: 1) Almenn mengun spillir nærumhverfinu, 2) sjúkdómar og lúsafaraldrar magnast upp í kringum eldið og laxalúsin leggst bæði á eldisfiskinn og villta laxfiska í 100-200 km fjarlægð frá eldinu og dregur þá til dauða, 3) eldisfiskar sleppa alltaf út og valda erfðablöndun í villtum laxastofnum í allt að 2000 km fjarlægð.
Hægt er að kynna sér þessi miklu umhverfisáhrif í skýrslu Norsku ríkisendurskoðunarinnar frá árinu 2012 . Þá er nýkomin skýrsla norska vísindaráðsins um ástand villtra laxa í Noregi þar sem enn eru dregin fram hin neikvæðu umhverfisáhrif eldisins. …
Í fyrravor tóku Samtök norska iðnaðarins (Norsk industri) undir með stjórnvöldum í þessari stefnumótun og settu markið á að árið 2030 yrði hægt að ala lax við Noreg án þeirra neikvæðu umhverfisáhrifa sem rakin voru hér að framan og eru óhjákvæmilegur fylgifiskur opins sjókvíaeldis.
Íslensk stjórnvöld ættu að bjóða þessi norsku nýsköpunarverkefni velkomin hingað til lands – þar sem mikill áhugi virðist vera fyrir auknu laxeldi til atvinnu- og verðmætasköpunar hér á landi – með þeim ívilnunum sem stjórnvöld geta veitt vaxtarbroddum í atvinnulífi. Þannig mætti stilla Íslandi upp í fremstu röð og taka strax stefnuna á umhverfisvænt laxeldi í sjó í stað þess að láta okkur taka fortíðarvanda Norðmanna í arf hér á landi – á meðan þeir sjálfir stefna í aðra átt heima hjá sér.“