Formaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir ríkisstjórnina harkalega vegna ákvæðis í frumvarpi um laxeldi þar sem kveðið er á um að laxeldisfyrirtækin fái ótímabundin leyfi til að stunda laxeldi hér á landi.

Þetta frumvarp varð til á vakt Svandísar og Katrínar í Matvælaráðuneytinu.

Með slíka vini þarf náttúra landsins ekki óvini.

Í umfjöllun Heimildarinnar segir m.a.:

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir ríkisstjórnina harkalega fyrir að ætla að afhenda laxeldisfyrirtækjum hér á landi rekstarleyfi í laxeldi með ótímabundnum hætti. Kveðið er á um þetta í lagafrumvarpi um lagareldi. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi á dag beindi Kristrún spurningum til matvælaráðherra, Bjarkeyjar Gunnarsdóttur: „Lengi getur vont versnað. […] Ríkistjórnin ætlar að afhenda laxeldisfyrirtækjum firðina okkar. Hvað gengur fólki eiginlega til? […] Af hverju mega þessi leyfi ekki vera tímabundin?“

Kristrún sagði enn frekar: „Nýr hæstv. matvælaráðherra, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, ætlar að mæla fyrir þessu frumvarpi á Alþingi á morgun og hefur tekið við þessu máli frá tveimur fyrrverandi matvælaráðherrum, fyrrverandi og núverandi foringjum Vinstri grænna, stjórnmálaflokks sem hefur á tyllidögum talað um þjóðareign auðlinda og mikilvægi þess að taka upp ákvæði um þjóðareign auðlinda í stjórnarskrá en án árangurs. Hvers konar þjóðareign er það að gefa þessi leyfi með varanlegum hætti til einkaaðila? Hver eru rökin og hvað breyttist? Af hverju mega þessi leyfi ekki vera tímabundin eins og flest önnur nýtingarleyfi á náttúruauðlindum? Meira að segja í orkuvinnslu þar sem fjárfestingar eru sannarlega bundnar til langs tíma og borga sig til baka yfir margra áratuga tímabil fá orkufyrirtækin ekki nema tímabundin rekstrarleyfi.“

Bjarkey segir breytinguna formlegs eðlis
Bjarkey svaraði því til að lagabreytingin sem um ræðir væri fyrst og fremst formlegs eðlis þar sem rekstrarleyfin í sjókvíaeldinu hafi í reynd verið ótímabundin en nú sé bara verið að hnykkja á því að svo sé. „Í lögunum í dag eru rekstrarleyfi gefin út til 16 ára í senn og það kom m.a. fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að löggjöfin væri óljós varðandi þessi atriði. Þar segir m.a., svo ég vitni í þá skýrslu, virðulegi forseti: „Ríkisendurskoðun telur að matvælaráðuneyti þurfi að taka af allan vafa um hvort rekstrarleyfi teljist tímabundin eða ótímabundin eign.“Það var sérstaklega bent á það að þegar rekstrarleyfi rennur út þá hefur Matvælastofnun afar takmarkaðar heimildir til að synja aðila um endurnýjun þrátt fyrir að frávik hafi orðið í starfseminni eða hún ekki verið innan markmiða laganna. Það má því í rauninni segja að mörgu leyti að eins og staðan er í dag þá séu leyfin ótímabundin.“…