Þrjú íslensk sjókvíaeldisfyritæki hafa frá 2011 aldrei greitt tekjuskatt á Íslandi.

Árið 2022 breyttu norsk stjórnvöld fyrirkomulagi skattheimtu á sjókvíaeldisfyrirtækin þar í landi. Fjórum árum síðar hafa aðeins skilað sér í ríkissjóð 12 prósent af áætluðum skatttekjum.

Skattasniðganga er hluti af vipskiptamódeli þessara norsku iðnrisa, sem eiga sjókvíaeldisfyrirtækin á Íslandi að langstærstum hluta.

Hér er samhengi til viðbótar. Forsvarsmaður Íslenska kalkþörungafélagsins er fyrrverandi forystumaður í sveitarstjórnarmálum á Vestfjörðum, rétt einsog núverandi forstjóri Arctic Fish. Þessi félög kunna leikinn. Í frétt RÚV frá 2025 segir:

Íslenska ríkið var í fullum rétti að reikna út nýtt verð í viðskiptum Íslenska kalkþörungafélagsins við írska eigendur sína, Marigot, sem keypti nær alla framleiðslu fyrirtækisins á Bíldudal.

Skatturinn komst að þeirri niðurstöðu að Kalkþörungafélagið hefði árum saman undirverðlagt framleiðslu sína og þannig komist hjá því að greiða skatta á Íslandi.

Skatturinn endurákvarðaði skattagreiðslur fyrirtækisins á fimm ára tímabil og krafðist þess að það borgaði rúmlega 100 milljónir auk vaxta.

Meðal þess sem var deilt um var hvort taka ætti launakostnað og afskriftir fastafjármuna inn í útreikning á því verði sem írska móðurfélagið ætti að greiða fyrir framleiðslu dótturfélagsins á Bíldudal.

Íslenska kalkþörungafélagið höfðaði mál gegn íslenska ríkinu en tapaði því í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Ákvörðun Skattsins um endurálagningu stendur því nema því verði breytt á æðri dómstigum.

Heimildin sagði frá því fyrir tveimur árum að verksmiðjan hefði aldrei á 15 ára starfstíma sínum borgað tekjuskatt. Þá sagði forstjórinn að stjórnendur fyrirtækisins væru ekki skattsvikarar.

Tæpu ári seinna sagði hann í viðtali við Viðskiptablaðið að fyrirtækið færi á hausinn ef ríkið ynni dómsmálið.