Gísli Sigurðsson íslenskufræðingur skrifar hér mikilvæga grein um þá hættu sem vofir yfir náttúru og lífríki landsins. Áform Landsvirkjunar um Hvammsvirkjun eru byggð á ósannindum. Ef af þessum framkvæmdum verður mun sjóbirtingurinn í Þjórsá tortímast og stærsti laxastofn Íslands stórskaðast.
Eins og Gísli bendir á hefur aldrei verið útskýrt af hverju er ekki sé hægt að afla orku til innlendrar starfsemi með því að segja upp óhagstæðustu leyniorkusamningunum við erlendu skattaskjólsfyrirtækin, því það þarf ekki að virkja meira til að afla meiri orku hér á landi. Við erum nú þegar heimsmeistarar í orkuframleiðslu miðað við íbúafjölda.
Í grein sinni, sem birtist á Vísi, segir Gísli ennfremur:
„Það var alltaf ein af forsendunum fyrir því að leyft yrði að ráðast í Hvammsvirkjun að engin óvissa ríkti um afdrif villtra stofna laxfiska í ánni. Með laxfiskum er ekki eingöngu átt við lax heldur líka bleikju og sjóbirting sem gengur upp ána til hrygningar – sömu fiskarnir ár eftir ár. Í Þjórsá er langstærsti villti laxastofn landsins og það er mikilvægt fyrir alla náttúruvernd við Norður Atlantshaf að hlúa að slíkum stofni – ekki síst eins og nú er komið með þeirri yfirþyrmandi ógn sem að villtum laxastofnum stafar frá opnu sjókvíaeldi á norskættum eldislaxi hér við land. Í Kveiksþættinum var talað eins og Landsvirkjun byggi yfir galdralausnum til að forða hruni þeirra villtu laxfiska sem ganga upp á svæðið fyrir ofan fyrirhugaða virkjun – þótt fyrir liggi að sjóbirtingurinn muni tortímast enda forðast Landsvirkjun að nefna hann á nafn.
Mikil afföll eru einnig fyrirsjáanleg á laxinum, hvað sem forstjóri Landsvirkjunar segir í sjónvarpinu. Til þess að fá óháð og faglegt utanaðkomandi mat á hugmyndum Landsvirkjunar um laxastiga og seyðafleytur í kringum Hvammsvirkjun leituðum við í Verndarsjóði villtra laxastofna (NASF) á sínum tíma til þeirrar stofnunar sem hefur vaktað árangur af sambærilegum aðgerðum í Columbia ánni í Bandaríkjunum, Fish Passage Center í Portland, Oregon. Stofnunin sendi okkur ellefu blaðsíðna greinargerð 20. janúar 2016 þar sem það var rakið lið fyrir lið að engin af fyrirhuguðum aðgerðum í kringum Hvammsvirkjun muni virka með þeim hætti sem Landsvirkjun lætur sig dreyma um. Ekkert hefur breyst frá þeim tíma sem haggar þeirri niðurstöðu. Bréf stofnunarinnar, ásamt fleiri fylgigögnum, má finna með umsögn Orra heitins Vigfússonar til verkefnastjórnar rammaáætlunar.
Fólki er í sjálfsvald sett hvort það trúir fagurgala og draumórum um sælutíð laxfiska í stigum og seyðafleytum Hvammsvirkjunar — eða faglegu mati rannsóknarstofnunar sem fæst ekki við neitt annað en að taka út og fylgjast með árangursleysi slíkra björgunar- og mótvægisaðgerða í kringum virkjanir í öðrum löndum. Sjálfur er ég ekki í nokkrum vafa um að sérfræðingum Fish Passage Center er betur treystandi í þessu efni en áróðursdeild Landsvirkjunar.“