Um 420.000 eldislaxar drápust í sjókvíum við Ísland í apríl samkvæmt tölum sem voru að birtast á Mælaborði fiskeldis á vef Matvælastofnunar. Það er sjöfaldur fjöldi allra villtra laxa sem ganga í ár á Íslandi.
Laxadauði eykst á hverju ári í sjókvíunum. Þessi gríðarlegi fjöldi sem drapst er maí er um tvöfalt fleiri eldislaxar drápust í sama mánuði í fyrra.
Hvergi er tekið á þessari dýravelferðarmartröð í lagareldisfrumvarpi Hönnu Katrínar Friðrikssonar atvinnuvegaráðherra sem er nú til meðferðar á Alþingi. Þvert á móti eru ákvæði frumvarpsins klæðskerasniðin að hagsmunum sjókvíaeldisfyrirtækjanna, gegn velferð eldisdýranna.
Eðlilega hefur þetta vakið athygli. Þar á meðal stærsta heilbrigðisþjónustafyrirtækis fyrir lagareldi á Íslandi, VETAQ, „sem býr að þekkingu dýralækna með áralanga reynslu innan heilbrigðis- og velferðarmála í fiskeldi“ en í umsögn þeirra um frumvarpið segir:
„Það vekur undrun okkar að svo lítil áhersla sé sett á velferð og heilbrigði eldisstofns í drögum að frumvarpi um lög um fiskeldi.“
Ljósmyndin sem hér fylgir sýnir löndun á eldislaxi sem drapst vegna vetrarsára í sjókvíum á Austfjörðum.
Kaldvík, sem stýrir öllu sjókvíaeldi fyrir austan, er enn til rannsóknar hjá lögreglunni vegna gruns um umfangsmikil brot á dýravelferðarlögum.