Arctic Fúsk er réttara nafn á þessi fyrirtæki en Arctic Fish.

Þetta er fyrirtækið sem olli einu stærsta umhverfisslysi Íslandssögunnar þegar að minnsta kosti 3.500 eldislaxar sluppu út í september í fyrra og mættu að stórum hluta í ár víða um land með skaða fyrir villta laxastofna sem enn sér ekki fyrir endann á.

Nokkrum vikum síðar fór allt á bólakaf í lús í sjókvíum Arctic Fish þannig að úr varð svo hörmulegur dýravelferðarharmleikur að heimspressan birti af því fréttir allt síðasta haust. Alls þurfti að slátra og farga um tveimur milljónum eldislaxa sem voru svo illa særðir af lúsinni að þeir áttu sér ekki eina einustu lífsvon.

Eina spurningin sem eftir stendur er þessi:

Af hverju er ekki búið að svipta þetta fyrirtæki starfsleyfi?

Í frétt Vísis segir m.a.:

Matvælastofnun fann sjö frávik, þar af fimm alvarleg, í reglubundinni úttekt stofnunarinnar á starfstöð fiskeldisfyrirtækisins Arctic Sea Farm hf. í Dýrafirði í vor. Að mati stofnunarinnar voru alvarleg frávik frá gæðakröfum hvað varðar eldisbúnað, þjálfun starfsfólks, gæðahandbók og innra eftirlit og úttektir. Þá gerir MAST einnig athugasemdir við eftirlit og viðgerðir fyrirtækisins á netapokum og við verklagsreglur.

Þetta kemur fram í skoðunarskýrslu stofnunarinnar var birt í lok júní en eftirlitsmenn fiskeldisdeildar MAST mættu í eftirlit dagana 22. til 24. apríl á skrifstofu fyrirtækisins á Ísafirði. Skoðuð voru og tekin afstaða til tólf skoðunaratriða af tuttugu og tveimur. Þar af gerðar kröfur um úrbætur í sjö skoðunaratriðum, þar af fimm alvarleg frávik og tvö minna alvarleg líkt og áður segir.

MAST hefur áður gert alvarlegar athugasemdir við starfstöðvar fyrirtækisins, til að mynda á Patreksfirði í fyrrasumar. …

Við úttekt á eldisbúnaði kallaði Matvælastofnun kom í ljós að ekki voru til staðar hjá fyrirtækinu neinar skráningar vegna tjóns á kvíum, þrátt fyrir að verklag geri ráð fyrir að það skuli gert. …

Þá voru ekki til staðar skipurit fyrir rekstrarleyfi né áætlun um móttöku nýrra starfsmanna sem stofnunin metur sem alvarlegt frávik. Þjálfun starfsfólks sé jafnframt ábótavant. „Það vekur athygli stofnunarinnar að þjálfun starfsmanna klárast í öllum tilfellum öll innan sama dags. Að mati Matvælastofnunar er þjálfunin viðamikil og ekki verður séð að hún geti rúmast innan eins dags. Sé það raunin er ljóst að fræðsla sé ekki nægjanlega umfangsmikil,” segir meðal annars um þetta atriði skýrslunni.

Alvarleg frávik reyndust einnig á innra eftirliti þar sem ekki reyndist vera til staðar virkt innra eftirlit sem ætlað sé að tryggja eftirlit með starfsemi fiskeldisstöðvar Þá voru einnig gerðar alvarlegar athugasemdir við sannprófun en engin sannprófun hafði verið framkvæmd síðan í nóvember 2023 en enni fylgdi engin undirritun frá forsvarsmanni eldisstöðvar né tímasett úrbótaáætlun. „Sannprófunarhópur er ekki óháður en gæðastjóri sá einn um síðustu sannprófun sem er ekki skv. verklagi. Það var því enginn óháður aðili sem sannprófaði þau kerfi og þær verklagsreglur sem settar eru fram í gæðahandbók,” segir um innri úttektir og sannprófun. …

Úttekt á viðbragðsáætlun vegna stroks var metin „í lagi“ í úttektinni, en minniháttar athugasemdir gerðar við viðbragðsáætlanir vegna stroks. Meðal annars segir í skýrslunni að ekki þurfi að liggja fyrir „rökstuddur grunur um strok,“ það nægi að fyrirtækið telji sig hafa „ástæðu til að ætla að hann hafi misst eldisfisk úr fiskeldisstöð og skal hann þá tilkynna atburð,“ líkt og það er orðað í athugasemd MAST. Forgangsmál ætti að vera að leita að orsökum og koma í veg fyrir að fiskur sleppi, sem sé mikilvægara en þar næst í viðbragðsáætluninni skuli vera að tilkynna um strok til viðeigandi stofnanna. …