Áfram berast fréttir af samþjöppun starfa hjá sjókvíaeldisfyrirtækjunum. Nú hefur verið hætt við þessi meintu áform um uppbyggingu á Patreksfirði.
Tímasetninguna, árið 2021, þegar fyrirtækin veifuðu þessum plönum framan í sveitarstjórn Vesturbyggðar ber að skoða sem hluta af refskák við að tryggja stuðning við þessa skaðlegu starfsemi í héraðinu. Ekkert gerðist svo í framhaldinu og nú hefur verið hætt við allt saman.
Við Íslendingar þekkjum vel gríðarleg áhrif tækniframfara á störf í sjávarútvegi. Nú dekkar ein áhöfn frystitogari það sem áhafnir fjölda minni báta og starfsfólk frystihúsa á landi gerði áður.
Fyrir sjö árum kynntu norskir eigendur sjókvíeldisfyrirtækisins Fiskeldis Austfjarða, sem nú heitir Kaldvík, áform um að fjarstýra fóðrun í sjókvíum í íslenskum fjörðum frá Noregi.
Tæknin var til staðar 2018 og það sem meira er hefur fleygt stórlega fram. Gervigreindin er að taka við af mannsauganu við skjái þar sem hefur verið fylgst með fóðrun og öðru í sjókvíunum.
Þróunin vísar skýrt í eina átt: innan skamms mun ekki starfsfólk sitja við og horfa á þetta myndefni. Gervigreindin tekur við og allt það dæmi verður keyrt í gegnum höfuðstöðvarnar í Noregi.
Haldi einhver að þetta sé hræðsluáróður má benda viðkomandi á viðtal frá 2022 við talsmann norska sjókvíaeldisrisann Grieg þar sem hann lýsir hvernig er hægt að fjarstýra fóðrun í sjókvíum frá höfuðstöðvum félagsins, skammt frá Stavanger, ekki aðeins á stóru svæði við strandlengju Noreg heldur líka á tveimur aðskildum svæðum í Kanada, í Bresku Kólumbíu og við Labrador.
Sjá hlekk í athugasemd. ATH
En hvað verður þá eftir á Íslandi? Það vitum við vel. Gríðarleg klóakmengun sem þessi fyritæki láta renna óhreinsaða í firðina okkar og stórlaskað lífríki en líklega enginn villtur íslenskur laxastofn vegna eyðandi áhrifa erfðablöndunar eldislax sem sleppur látlaust úr sjókvíunum.
Í frétt Bændablaðsins segir m.a.:
Í júní 2021 kynntu forstjórar Arnarlax og Arctic Fish fyrir bæjarráði Vesturbyggðar áform um uppbyggingu sláturhúss á Patreksfirði. …
Gerður B. Sveinsdóttir, bæjarstjóri segir að ekkert samtal hafi átt sér stað síðan um nýtt laxasláturhús og að forsendur séu breyttar eftir að Arctic Fish tók ákvörðun um uppbyggingu í Bolungavík.
Björn Hembre forstjóri Arnarlax segir að um hafi verið að ræða sameiginlegt verkefni fyrirtækjanna tveggja um að koma upp sláturhúsi. En það hafi því miður ekki orðið að veruleika. Aðilar málsins Vesturbyggð, Arnarlax og Arctic Fish hafi ekki náð samkomulagi um verkefnið.
Í dag hafi Arnarlax nægilega afkastagetu í sláturhúsinu á Bíldudal fyrir framleiðslu fyrirtækisins miðað við fyrirliggjandi framleiðsluleyfi og ef með þarf er hægt að semja við Arctic Fish um slátrun í Bolungavík. …