Lyfja- og efnavopnahernaður sjókvíaeldisfyrirtækjanna gegn náttúru Íslands heldur linnulítið áfram.
Gera má ráð fyrir að um 10 milljónir eldislaxa séu í þessum 64 sjókvíum sem Mbl segir frá að gefið hafi verið lyfjablandað fóður alla daga í viku til að reyna að losa laxalús af þeim.
Þetta er ekkert smá magn af lyfjafóðri sem endar auðvitað að langmestu leyti í sjónum eftir að ferðalag sitt í gegnum laxinn eða fallið beint til botns í gegnum netmöskvana.
Matvælaverslunarkeðjan Whole Foods, sem sérhæfir sig í heilsusamlegum vörum, tekur ekki til sölu eldislax sem hefur verið meðhöndlaður með lyfjafóðri eða skordýraeitri sem er úðað reglulega í sjókvíar hér við land.
Í umfjöllun Morgunblaðsins segir:
Matvælastofnun MAST gaf út leyfi fyrir notkun á lúsaeitri í 64 laxeldiskvíum á Vestfjörðum fyrr í mánuðinum, að fenginni ráðgjöf Fisksjúkdómanefndar. Ljóst er að laxa– eða fiskilúsin virðist vera viðvarandi og vaxandi vandamál en unnið hefur verið að aðgerðum fyrir vestan í sumar af eldisfyrirtækjum þar. Nú virðist vandamálið hafa vaxið og óskað var eftir leyfi til að nota lúsaeitur.
Lyfinu Slice vet er blandað í fóður laxins og honum gefið það í kvíunum. Í leiðbeiningum sem fylgja lyfinu er starfsmönnum sem meðhöndla lyfjablandaða fóðrinu ráðlagt að verja sig með hönskum og grímum. Þá er þeim bent á að neita ekki matar eða reykja nema hafa þvegið sér vandlega áður. Leyfin sem gefin voru út eru eftirfarandi:
Átta kvíar við Hvestu í Arnarfirði
Tíu kvíar á eldissvæðinu við Haukadalsbót í Dýrafirði
Þrettán kvíar við Hvannadal í Tálknafirði
Nítján kvíar við Laugardal í Tálknafirði
Fjórtán kvíar við Hringsdal í Arnarfirði
…Frá árinu 2017 hefur 71 leyfi verið gefið út til notkunar á lúsaeitri í sjókvíaeldi á Vestfjörðum. Meðhöndlun með lyfinu Slice vet tekur að jafnaði viku tíma.