Þessari grein Benediktu þarf að dreifa sem víðastt.
„Í fyrra létu sjókvíaeldisfyrirtækin 4,5 milljónir eldisdýra drepast í sjókvíunum. Það eru 56 sinnum fleiri eldislaxar en samanlagður fjöldi villtra laxa sem gengur í ár á landinu. Og þessir eldislaxar kveljast þar að auki til dauða. Þeir ýmist kafna eða hjartað gefur sig, þar sem þeir þola ekki píndan vöxtinn, eða vegna hrikalegra áverka af völdum laxalúsar og vetrarsára.
Þetta á við alls staðar þar sem sjókvíaeldi er stundað. Í Noregi þurfti til dæmis í átta vikur í röð nú í febrúar og mars að farga eða vinna í mjöl 35 prósent af öllum eldislaxi sem kom til slátrunar. Svo illa farinn og sjúkur var hann. Hverjir hafa lyst á að borða matvöru sem er framleidd með þessum hætti?
Viðurlög frumvarps Matvælaráðherra eru svo veikburða að fyrirtækin geta látið yfir 20 prósent af eldisdýrunum drepast samfleytt í 27 til 36 ár áður en reynir á ákvæði um „afturköllun rekstrarleyfis“. Þetta er algjörlega óásættanleg sinnuleysi gagnvart velferð eldisdýranna.
Þetta frumvarp má ekki verða að lögum af mörgum ástæðum og þetta er ein þeirra.“
Við mælum eindregið með að lesa grein Benediktu í heild.
Nú er komið fram á Alþingi frumvarp sem var unnið á vakt Svandísar Svavarsdóttur og Katrínar Jakobsdóttur þegar hún sinnti störfum matvælaráðherra í um þrjá mánuði á þessu ári. Við vorum mörg sem bundum vonir við að tekið yrði fast á sjókvíeldisfyrirtækjunum í þessu frumvarpi. Þar á meðal á skelfilegri meðferð þeirra á eldislaxi. Þær vonir eru að engu orðnar því sem fyrr skulu eldisdýrin pínd til að viðhalda gróða eldisfyrirtækjanna.
Hroðaleg meðferð
Á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs drápust 815.000 eldislaxar í sjókvíum við Ísland samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Matvælastofnun. Sú tala er á við rúmlega tífalda stærð alls íslenska villta laxastofnsins. Í fyrra létu sjókvíaeldisfyrirtækin 4,5 milljónir eldisdýra drepast í sjókvíunum. Það eru 56 sinnum fleiri eldislaxar en samanlagður fjöldi villtra laxa sem gengur í ár á landinu. Og þessir eldislaxar kveljast þar að auki til dauða. Þeir ýmist kafna eða hjartað gefur sig, þar sem þeir þola ekki píndan vöxtinn, eða vegna hrikalegra áverka af völdum laxalúsar og vetrarsára.Þetta á við alls staðar þar sem sjókvíaeldi er stundað. Í Noregi þurfti til dæmis í átta vikur í röð nú í febrúar og mars að farga eða vinna í mjöl 35 prósent af öllum eldislaxi sem kom til slátrunar. Svo illa farinn og sjúkur var hann. Hverjir hafa lyst á að borða matvöru sem er framleidd með þessum hætti?
Verra hér á landi
Ástandið er enn verra hér. Mun hærra hlutfall drepst á hverju ári í sjókvíum við Ísland í samanburði við Noreg. Martröð dýranna er ólýsanleg eins og sjá má í myndböndum, sem Veiga Grétarsdóttir Sulebust kajakræðari og náttúruverndarkona tók hjá Arctic Fish og Arnarlaxi. Fyrirtækin í Patreksfirði þurftu að farga um tveimur milljónum eldislaxa sem voru svo illa skaðaðir af lús að engin leið var að bjarga þeim. Þessi myndbönd fóru í birtingu í fjölmiðlum um allan heim og vöktu hrylling og viðurstyggð.Má ekki verða að lögum
Því miður þá munu fyrirtækin fá að halda þessu áfram svo til óáreitt ef lagareldisfrumvarpið verður að lögum. Þar er vissulega kveðið á um skerðingu á framleiðslukvóta en viðurlögin eru svo veikburða að fyrirtækin geta látið yfir 20 prósent af eldisdýrunum drepast samfleytt í 27 til 36 ár áður en reynir á ákvæði um „afturköllun rekstrarleyfis“. Þetta er algjörlega óásættanleg sinnuleysi gagnvart velferð eldisdýranna. Þetta frumvarp má ekki verða að lögum af mörgum ástæðum og þetta er ein þeirra.