Umsagnir náttúruverndarsamtaka og einstaklinga sem er umhugað um umhverfi og lífríki Íslands er á eina leið. Reglugerðardrög sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um fiskeldi fá falleinkun.
Skv. frétt RÚV:
Alls bárust 39 umsagnir. Margar þeirra eru neikvæðar, og þá sérstaklega um þann þátt að fella eigi brott ákvæðið um fjarlægðarmörkin. Á meðal þeirra sem mótmæla því eru Landssamband veiðifélaga, Veiðifélag Langadalsár, Hvannadalsár og Þverár, Ungir umhverfissinnar, Íslenski náttúruverndarsjóðurinn, Verndarsjóður villtra laxastofna og Náttúruverndarsamtök Íslands. En hvers vegna er þessu mótmælt?
„Vegna þess að það minnkar eða gerir að nær engu vörnina sem fjarlægðin felur í sér gagnvart staðsetningu eldisósa og laxveiðiáa. Það dregur úr þessari vernd sem fjarlægðin gefur,“ segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands.
Hvaða áhrif óttist þið að það geti haft?
„Það getur valdið lúsafári, smithættu fisksjúkdóma frá eldiskvíum og sjónmengun í ósnortinni náttúru.“
Ráðherra hefur sagt að það sé búið að lögfesta áhættumat erfðablöndunar og með því sé verið að setja strangari skilyrði en með fjarlægðartakmörkunum – er það ekki rétt?
„Nei ekki hvað varðar lúsafárið og smithættuna. Þetta nær ekki til þess. Og sjónmengunin er ekki þar inni heldur,“ segir Árni.