Á þessari mynd má sjá starfsmenn á vegum Arctic Fish landa á Þingeyri eldislaxi sem drapst í sjókvíum félagsins í Dýrafirði. Þetta er #norskaleiðin sem Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) berjast fyrir að viðhalda á Íslandi.
Aldrei hafa jafn margir eldislaxar drepist í sjókvíum í fjörðum landsins yfir vetrarmánuðina og á þessu ári.
Fyrstu þrír mánuðir ársins eru alltaf ömurlegir fyrir eldislaxana vegna sjávarkulda.
Stjórnendur þessa stóriðnaðar hafa sýnt í verki að þeir geta ekki stundað þessa starfsemi með mannúðlegum hætti. Engar framfarir hafa orðið í velferðarmálum eldislaxanna. Þvert á móti reyndar því þetta er langversta byrjun árs í sögu sjókvíaeldis við landið, bæði í fjölda fiska og hlutfalli í kvíunum. Ástandið versnar bara ár frá ári.
Þessi norska leið SFS við sjókvíaeldi á laxi er óboðleg aðferð við matvælaframleiðslu.
Við biðjum ykkur, kæru baráttusystkini, að hjálpa okkur að vekja athygli á þessari norsku leið SFS með því að dreifa þessari færslu sem víðast!
Ljósmynd: Veiga Grétarsdóttir Sulebust