Þetta eru merkileg ný tíðindi! Eystri landsréttur Danmerkur (Østre Landsret) hefur fellt úr gildi leyfi fyrir sjókvíaeldi í Eystrasalti við Láland þar sem ​„lyfjaleifar, mikið magn af saur úr fiski og kemísk efni sem notuð eru til að meðhöndla netapokana“ berast í hafið.

Staðfesti dómstóllinn þar með að ákvörðun umhverfis- og matvælakærunefndar Danmerkur um að afturkalla starfsleyfi sjókvíaeldis við Láland, hafi verið réttmæt.

Kærunefndin taldi að umhverfiskröfurnar sem leyfið byggði á væru ekki nægilega strangar og krafðist nýrrar og ítarlegrar rannsóknar á áhrifum starfseminnar á búsvæði í hafinu.

Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum teljum að sama gildi hér við land. Að leyfi fyrir sjókvíeldi á laxi í opnum netapokum hafi verið gefin út með ólöglegum hætti og beri að fella úr gildi.

Við erum ekki ein um að telja eitthvað bogið við útgáfu leyfanna. Síðastliðinn janúar óskaði ESA, eftirlitsstofnun EFTA, eftir upplýsingum frá stjórnvöldum um hvernig staðið hefur verið að útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi á laxi við Ísland. ESA gaf stjórnvöldum frest til að svara til 2. mars. Þau óskuðu eftir framlengdum fresti og fengu til 17. mars. Nú eru komnir 47 dagar frá því sá frestur rann út og enn bólar ekki á svari.

Það er auðvitað afgerandi vísbending í hverslags vandræðum stjórnvöld eru.

Í frétt DR segir meðal annars:

… I Danmarks Naturfredningsforening er man begejstret over dommen. Her mener de, at myndighederne nu kan aflevere nye, hårde krav til landets havbrug, hvis de vil fortsætte med at opdrætte spisefisk i de danske bølger – også selv om de i dag har papirerne i orden.

– Vi er utroligt glade, fordi dommen slår fast, at der fremover kun kan gives tilladelse, hvis det grundigt er dokumenteret, at det ikke vil skade naturen i havet, som jo i forvejen er voldsomt presset, siger Maria Reumert Gjerding, præsident i Danmarks Naturfredningsforening.

Hun forventer, at flere havbrug må lukke, fordi de ikke vil kunne dokumentere, at deres virksomhed kan leve i pagt med naturen i landets beskyttede havområder. …