Í bréfi sem stjórn Landverndar var að senda til Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir að ekki sé um það deilt að fiskeldi í opnum sjókvíum geti valdið margvíslegum neikvæðum umhverfisáhrifum.
Stjórn Landverndar bendir líka á að núverandi fyrirkomulag og rekstur fiskeldis í opnum sjókvíum sélangt frá því að uppfylla almenn skilyrði um „sjálfbærni“. Stjórn Landverndar telur því afar varhugavert að halda áfram á sömu braut vaxtar í fiskeldi í opnum sjókvíum.
Vel gert Landvernd!
Í frétt Vísis um málið segir:
„Stjórn Landverndar hvetur matvælaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til að koma í veg fyrir fyrirsjáanlegt umhverfisslys við Örlygshöfn og styrkja og bæta allt regluverk fyrir fiskeldi í opnum sjávarkvíum. Þá eru ráðherrarnir hvattir til banna frekari vöxt fiskeldis þar til þekking um langtímaáhrif þess eldis sem þegar er komið af stað á Íslandi er fyrir hendi.
Í bréfi Landverndar til Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir að ekki sé um það deilt að fiskeldi í opnum sjókvíum geti valdið margvíslegum neikvæðum umhverfisáhrifum. Sífellt komi upp ný dæmi um það á Íslandi.“
Bréf Landverndar í heild sinni:
Um það er ekki deilt að fiskeldi í opnum sjókvíum getur valdið margvíslegum neikvæðum umhverfisáhrifum. Sífellt koma upp ný dæmi um það á Íslandi. Áhrifin eru bæði bein og óbein, þ.e. tengjast allri virðiskeðjunni frá öflun fóðurs, flutninga og notkunar lyfja og bóluefna og sleppinga á fiski sem geta haft áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika. Þekking á langtímaáhrifum við Ísland er takmörkuð og lög og reglur virðast ekki þróast í sama takti og ör vöxtur greinarinnar. Óhætt er að fullyrða að núverandi fyrirkomulag og rekstur fiskeldis í opnum sjókvíum er langt frá því að uppfylla almenn skilyrði um „sjálfbærni“.
Stjórn Landverndar telur því afar varhugavert að halda áfram á sömu braut vaxtar í fiskeldi í opnum sjókvíum. Nú er tímabært að staldra við, meta stöðuna og áhrifin á náttúru og umhverfi og bæta lög og reglur og styrkja eftirlit.
Svo virðist sem áhrif forsvarmanna greinarinnar á stjórnsýslu og stefnu í málafloknum sé meiri en eðlilegt getur talist í ríki sem kennir sig við lýðræðisleg vinnubrögðum og jafnræði á meðal þegna landsins. Nýjast dæmi um þetta er gerð strandskipulags við Vestfirði og Austfirði þar sem öll önnur nýting virðist víkja fyrir áformum fiskeldisfyrirtækja.
Annað dæmi um óeðlileg áhrif fiskeldishagsmuna birtist þegar fiskeldisfyrirtækin eru uppvís að því að nota hættuleg efni í sinni starfsemi, sem ekki er heimild fyrir í starfsleyfi, eins og t.d. koparoxíð, er þeim ekki refsað. Í stað eðlilegrar refsinga bregðast stjórnvöld við með því að breyta starfsleyfinu fyrirtækinu í hag og náttúru og umhverfi í óhag, og í tráss við leiðbeiningar stofnunar sem býr yfir sérþekkingu á viðkomandi sviði. Landvernd hefur gert athugasemdir til Umhverfisstofnunar við slíka málsmeðferð en hefur ekki fengið viðhlítandi skýringar.
Ákvarðanir um styttri hvíldartíma, úr sex mánuðum í þrjá, þrátt fyrir viðvarandi sérfræðinga eru annað dæmi óeðlileg áhrif fiskeldisfyrirtækja og takmarkað getu stjórnvalda að standast áhlaup forsvarsmanna greinarinnar. Náttúran nýtur ekki vafans.
Nýlegt dæmi um vangetu stjórnvalda til stjórnsýslu í þessum geira er ákvörðun um breytingar á rekstrarleyfi til stækkunar eldissvæðis við Kvígindisdal í Patreksfirði fyrir fyrirtækið Arctic Sea Farm, sem má líta á sem úthlutun á nýju eldissvæði. Þar er eldisvæðið útvíkkað að því er virðist án lagastoðar. Með þeirri staðsetningu er það komið inn á viðkvæmt svæði við Örlygshöfn; svæði sem er á náttúruminjaskrá og sem nýtur víðtækrar friðunar á grundvelli laga nr. 60/2013 um náttúruvernd og er með sérstæðum hætti mjög vel útsett fyrir hverskonar mengun sem berst með sjávarföllum langt inn á land.
Með þessu bréfi hvetur Landvernd við ráðherra til að koma í veg fyrir fyrirsjáanlegt umhverfisslys við Örlygshöfn, styrkja og bæta allt regluverk fyrir fiskeldi í opnum sjávarkvíum og banna frekari vöxt fiskelds þar til þekking um langtímaáhrif þess eldis sem þegar er komið af stað á Íslandi er fyrir hendi.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Landverndar
Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri