Blóðbað í Berufirði.

Martraðarkennt ástand hefur verið í sjókvíum Kaldvíkur í Berufirði undanfarna mánuði. Eldislaxar fyrirtækisins hafa stráfallið vegna þörungablóma sem leggst á tálknin og kæfir þá. Í júlí einum drápust 16% laxa í kvíum Kaldvíkur, í júní rúmlega 6% og rúmlega 5% í maí. Alls hafa um 420 þúsund eldislaxar drepist hjá Kaldvík síðustu þrjá mánuði.

Til að setja þessar hryllingstölur í samhengi þá hefur dauði eldislaxa í sjókvíum við Ísland verið im 23% á ársgrundvelli undanfarin ár. Kaldvík er komið langt yfir það á þremur mánuðum.

Í janúar kærði Matvælastofnun (MAST) Kaldvík til lögreglu fyrir brot á dýravelferðarlögum. Það mál er enn í rannsókn. MAST sektaði á þessu ári fyrirtækið í öðru tilviki fyrir brot á lögum um velferð eldisdýra.

Svona fara þessir menn með sín eigin eldisdýr. Hefur einhver trú á þvi að þeir gangi vel um þá firði sem þeir eru með í láni frá þjóðinni undir þessa ömurlegu starfsemi sína?

Í umfjöllun RÚV segir m.a.:

… Þörungar taka að vaxa og fjölga sér hratt í sjónum þegar sólarljós eykst á vorin og laxeldisfyrirtæki þurfa að búa sig undir tvær bylgjur þörungablóma. Fyrst í maí þegar mikil næring er fyrir þörunginn sem hjaðnar í júní þegar hann hefur étið upp. Í júlí getur blóminn vaxið aftur.

Þetta olli miklu tjóni hjá Kaldvík í Berufirði í sumar. Tölur um laxadauða í júlí eru nýbirtar í mælaborði Fiskeldis og kemur í ljós að yfir 236 þúsund laxar drápust í firðinum eða yfir 16% af fiskinum. Það var lax sem átti að slátra í haust og vetur og fóru mikil verðmæti í súginn.

Matvælastofnun staðfestir að þetta hafi verið vegna þörungablóma. Ákveðnar tegundir þörunga eru skæðar, geta sest í tálkn fiskanna og líka étið upp súrefni úr sjónum. …

Fiskur sem drepst í eldikvíum er unninn í svokallaða meltu en þá er hann hakkaður, maurasýru bætt saman við og hann seldur úr landi meðal annars til áburðarframleiðslu. Þessi nýting skilar ekki hagnaði eins og nú háttar til heldur þurfa eldisfyrirtæki að standa straum af kostnaði við að losna við dauðfiskinn með þessum hætti.