Baráttusystkini okkar hjá Patagonia eru komin til Íslands til að styðja við bakið á þeim yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar sem vill vernda umhverfi og lífríki landsins fyrir eyðileggjandi áhrifum opins sjókvíaeldis á laxi.
Í frétt Morgunblaðsins er bent á að í bók Höllu Tómasdóttur, forseta, Hugrekki til að hafa áhrif sem kom út 2023, helgar hún Patagonia einn kafla. (Sjá mynd)
í bókinni fjallar Halla um að Patagonia hafi ítrekað brotið blað í viðskiptasögunni hvað varðar ábyrgð og ástríðu fyrir umhverfismálum og lýsir Yvon Chouinard, stofnanda fyrirtækisins, sem „fyrirmynd og leiðarljósi“ í sínu lífi. Hún segir líka frá því hversu mikil áhrif það hafði á hana þegar hún hitti Yvon fyrir tilviljun á veitingastað í Reykjavík sumarið 2022. Myndin sem hér fylgir er af Höllu og Yvon frá þeim fundi og einnig eru myndir af kaflanum og forsíðu bókarinnar.
Við minnum á viðburðinn með þessu góða fólki í Bíó Paradís annað kvöld. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Grein Morgunblaðsins um heimsókn Patagonia til landsins má lesa hér.
Í grein Morgunblaðsins kemur líka fram að forseta Alþingis hafa borist áskorun frá yfir 1.500 manns frá fjölmörgum löndum um að vandað verði þannig til verka við umgjörð sjókvíaeldis við Ísland að það skaði ekki náttúruna og villta íslenska laxinn.
Athygli vakti í byrjun árs þegar Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra gagnrýndi bandaríska fyrirtækið Patagonia fyrir að reyna að hafa áhrif á íslenska lagasetningu í fiskeldismálum. Fyrirtækið hvatti fólk til að senda inn umsagnir um frumvarpið og til að senda forseta Alþingis tölvupóst til að mótmæla því.
Lýsti ráðherra þessu uppátæki sem „herferð með fjöldaframleiddar umsagnir til þess að hafa áhrif á löggjöf hér á landi“.
Á sínum tíma sagði Jón Kaldal, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins, að afskipti Patagonia væru fullkomlega lýðræðisleg.
Nú ber svo við að Nina Hajikhanian, framkvæmdastjóri Patagonia í Evrópu, er komin hingað til lands og talar á Iceland Innovation Week í Austurbæjarbíói á morgun ásamt fyrrnefndum Jóni og Ólöfu Skaftadóttur, ráðgjafa og hlaðvarpsstjórnanda.
Vill styðja við „þýðingarmiklar“ breytingar
Hún segir að þar muni hún ræða um víðari skilgreiningu á nýsköpun. „Ekki bara tækni, heldur hvernig fyrirtæki geta unnið á annan hátt með samfélögum til að vernda náttúruna.Ég er oft beðin um að ljóstra upp um hvernig Patagonia vinnur með grasrótarhópum um allan heim að flóknum umhverfismálum. Aðferðin sem við beitum er mun meira en bara fjármögnun. Hún snýst um langtímasamstarf, að byggja upp traust og aðlagast breyttum þörfum samstarfsaðila okkar.
Þess vegna er mér ánægja að slást í för með Jóni Kaldal á morgun þar sem við munum deila því hvernig samstarf fyrirtækja og staðbundinna samtaka getur stutt við þýðingarmiklar og varanlegar breytingar,“ segir hún og bætir við að umrætt samtal eigi sér stað á mikilvægum tímamótum.
…
Patagonia er stórt fyrirtæki og vinsælt. Áhrif þess ná víða eins og sjá má af aðdáun Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á því sem kemur fram í bók hennar, Hugrekki til að hafa áhrif. Þar segir hún Patagonia ítrekað hafa brotið blað í viðskiptasögunni hvað varðar ábyrgð og ástríðu fyrir umhverfismálum og lýsir Yvon Chouinard, stofnanda fyrirtækisins, sem „fyrirmynd og leiðarljósi“ í sínu lífi.
Því þarf það kannski ekki að koma á óvart að margir hafi brugðist við ákalli Patagonia um að mótmæla frumvarpi um lagareldi á Íslandi. Samkvæmt upplýsingum frá Íslenska náttúruverndarsjóðnum hafa 1.503 tölvupóstar verið sendir forseta Alþingis af þessu tilefni, flestir frá Bandaríkjunum, Ítalíu, Þýskalandi, Frakklandi og Hollandi.