Í frétt 200 mílna á mbl í gær kemur fram að sjókvíaeldisfyrirtækin greiddu í fyrra 1,47 milljarð í fyrra fyrir afnot af sameiginlegum hafsvæðum þjóðarinnar undir starfsemi sína.
Á sama tíma ollu þungaflutningar þessara fyrirtækja gríðarlegu tjóni á vegakerfi landsins, líklega svo miklu að margfalda má þetta tæpa 1,5 milljarðs eldisgjald nokkrum sinnum.
Rekstur sjókvíaeldisfyrirtækjanna var svo með þeim hætti að þau greiddu ekki tekjuskatt í ríkissjóð (ekki nýjar fréttir).
Við þetta má bæta stórtjóni á íslenskri náttúru og lífríki vegna mengunar og erfðablöndunar eldislax við villta laxastofna.
Þetta er starfsemi í þágu örfárra sem er ekki aðeins niðurgreidd af náttúrunni, sem við eigum öll, heldur útheimtir miklu meiri útgjöld úr ríkissjóði en hún skilar í hann.
Myndin sýnir norska froskkafara með eldislaxa sem þeir fjarlægðu úr einum hyl Hrútafjarðarár eftir að Arctic Fish lét þúsundir eldislaxa sleppa úr einni sjókví sinni í um 300 km fjarlægð á sunnanverðum Vestfjörðum.