IWF skilaði í gær til Umhverfisstofnunar eftirfarandi athugasemd við tillögu að breyttu starfsleyfi Arnarlax:
IWF leggst gegn breytingu á starfsleyfi Arnarlax ehf. í Patreks- og Tálknafirði í þá veru að félagið fái heimild til notkunar á eldisnótum með ásætuvörnum sem innihalda koparoxíð. Sjókvíaeldi er mengandi iðnaður sem skaðar lífríkið. Fyrirtæki sem stunda þessa starfsemi eiga ekki að fá minnsta afslátt frá því að virða þau skilyrði sem þau hafa gengist undir við útgáfu á starfs- og rekstrarleyfum. Arnarlax hefur samkvæmt starfsleyfi ekki heimild til að losa í sjó efni, svo sem kopar og önnur efni sem talin eru upp í listum 1. og 2. í viðauka reglugerðar nr. 796/1999 um varnir gegn mengun vatns.
Arnarlax varð við eftirlit Umhverfisstofnunar í nóvember 2018 uppvíst að brotum gegn þessu skilyrði og ætti að sjálfsögðu að sæta viðurlögum frekar en að fá heimild fyrir þessari brotastarfsemi sinni.
Í Noregi, þar sem sjókvíaeldið á sér lengri og umfangsmeiri sögu en hér við land, er ástandið fyrir allnokkru orðið þannig að rauð viðvörunarljós blikka vegna óásættanlegrar koparmengunar í fjörðum landsins frá sjókvíaeldi. Norska Hafrannsóknastofnunin vakti athygli á þessari stöðu í umfjöllun á vefsvæði sínu í febrúar á þessu ári. Þar kemur fram að kopar frá sjókvíaeldisiðnaðinum mengar hafsbotninn og nágrenni sjókvía sem húðaðar eru með koparoxíði og að ekki sé til staðar næg þekking á afleiðingum þess. Í umfjöllun norsku Hafrannsóknastofnuninni er bent á að ef fyrirtæki með starfsemin á landi verða uppvís að því að losa umfram tvö kíló af kopar í umhverfið á ári er þeim lokað af yfirvöldum. Sjókvíaeldið losar 1.700 kíló á ári í sjó við Noreg. Þar kemur líka fram að rannsóknir sýna að um 80 prósent af kopar, sem er að finna í ásætuvörnum sem innihalda koparoxíð, losnar í hafið.
Sjókvíaeldisfyrirtæki við Ástralíu og Nýjasjáland hafa hætt notkun ásætuvarna með koparoxíði vegna mögulegra skaðlegra áhrifa á umhverfið og lífríkið.
Það er þekkt og staðfest að kopar er hættulegur lífríkinu. Kopar leysist ekki upp og hverfur af sjálfu sér í umhverfinu. Engin ástæða er til ætla annað en að kopar muni hlaðast upp af sífellt vaxandi magni með tímanum í setlögum og öðru umhverfi sjókvíaeldissvæðanna í Patreks- og Tálknafirði ef Arnarlax fær heimild fyrir notkun á eldisnótum með ásætuvörnum sem innihalda koparoxíð. Einmitt af þeim sökum hefur almennt verið tekið fyrir notkun netapoka með ásætuvörn af þessari gerð í starfsleyfum sjókvíaeldisfyrirtækja hér við land. Engin ástæða er til að hverfa frá þeirri stefnu.