Þetta er skjáskot úr nýjasta ársreikningi sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur. Fyrirtækið hefur ekki skilað ársreikningi fyrir 2025 en hefur þó birt upplýsingar um að tap í fyrra nam 7 milljörðum og 122 milljón króna, sem jafngildir 19,5 milljónum hvern einasta dag ársins.

Gengi hlutabréfa Kaldvíkur er tæpar 4 norskar krónur á hlut eða 14 prósent af því sem það var um áramótin 2024/25.

Fyrir rúmri viku sendi félagið frá sér tilkynningu um að það gæti ekki staðið við áður tilkynnta útgáfu á ársreikningi sem er vísbending um að félagið sé mögulega ekki gjaldfært.

Kaldvík var sektað af MAST í fyrra fyrir brot á dýravelferðarlögum og öðru máli vegna alvarlegri brota á sömu löggjöf vísað til lögreglu. Dauði eldislaxa í sjókvíum á Austfjörðum hefur verið hrikalegur árum saman, enn verri en á Vestfjörðum þar sem ástandið er þó skelfilegt.