Heimildarmyndin Árnar þagna hefur fengið frábærar viðtökur á sérstökum boðssýningum víða um Noreg. Og nú er hún komin í sýningar í norsku sjónvarpi.

Myndin fjallar um hvernig norska leiðin í sjókvíeldi á laxi er að eyða villtum laxastofnum í Noregi með víðtækum hrikalegum afleiðingum. Þar á meðal að kippa fótunum undan afkomu fjölmargra fjölskyldna í sveitum landsins sem hafa kynslóð eftir kynslóð byggt stóran hluta tekna sinna á sjálfbærum stangveiðum.

Við vitum að það sama mun gerast á Íslandi ef ekki verður gripið hratt í taumana.

Norska Umhverfisstofnunin lokaði í fyrra 33 laxveiðiám vegna bágs ástands villtra laxastofna og tiltók að ástæðurnar væru afleiðingar af sjókvíeldi á laxi og loftslagsbreytingar.

Erfðablöndun við eldislax sem sleppur úr sjókvíaeldi breytir hæfileikum villta laxastofna til að lifa af í náttúrunni. Gen úr húsdýri kollvarpa aðlögunarhæfni sem hefur orðið til á um tíu þúsund árum.

Tæplega 70 prósent villtra laxastofna í Noregi ber nú merki um slæma eða mjög slæma erfðablöndun við eldislax.

Sjókvíaeldi á laxi er óboðleg aðferð við matvælaframleiðslu.

Myndin er aðgengileg í Noregi á efnisveitunni VGTV