Arctic Fish er ekki aðeins að glíma við göt á netapokum í sjókvíum sínum heldur er risagat líka í bókhaldi fyrirtækisins sem tapaði 637 milljónum króna fyrstu sex mánuði ársins. Staðan er svo slæm að félagið er tilneytt til að auka hlutafé um fimm milljarða króna til að koma í veg fyrir að lánveitendur þess gjaldfelli lán.

Afkoma Arctic Fish hefur verið neikvæð um 2,19 evrur á hvert slátrað kíló af eldislaxi upp úr kví á fyrri hluta ársins.

Með öðrum orðum þá hefur félagið borgað um tvö þúsund krónur með hverjum einasta sjö kílóa laxi sem það hefur alið á þessu tímabili. Verðið á eldislaxi hefur verið enn verra á mörkuðum í júlí og ágúst og tapið á hvert kíló því bara færst í aukana.

Stærstu eigendur Arctic Fish eru norski sjókvíaeldisrisinn MOWI með 51,8 prósent hlut og Síldarvinnslan í Neskaupsstað (SVN) með 34,19 prósent hlut. Bæði félög taka þátt í hlutafjáraukningunni.

Síldarvinnslan kom inn í eigendahóp Arctic Fish í júní 2022 og greiddi þá um 15 milljarða króna fyrir 34,19 prósent hlutinn. Gengi félagsins hefur frá þeim tíma farið stöðugt lækkandi og verið í lóðréttu falli undanfarna mánuði. Markaðsgengið er nú rúmlega 70 prósent lægra en þegar Síldarvinnslan keypti en við það verð er stuðst í hlutafjáraukningunni.

Þetta þýðir að Síldarvinnslan er með óbókfært tap upp á 10,6 milljarða króna í bókum sínum vegna fjárfestingarinnar í Arctic Fish.

Vísir.is fjallar um taprekstur Arctic Fish:

Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur gefið vilyrði fyrir að skrá sig fyrir hlutum í Arctic fish fyrir um tvo milljarða króna í hlutafjáraukningu félagsins. Félagið hefur boðað hlutafjáraukninguna til þess að bæta eiginfjárhlutfall sitt, en félagið tapaði um 637 milljónum króna á fyrri hluta þessa árs.

Arctic fish, sem er að mestu í eigu norska fiskeldisrisans Mowi og Síldarvinnslunnar, birti í gær uppgjör fyrir fyrri hluta ársins. Í tilkynningu félagsins til Euronext kauphallarinnar í Noregi segir að framleiðsla hafi gengið vel á tímabilinu en á sama tíma hafi markaðsaðstæður verið erfiðar vegna lágs markaðsverðs lax. …

Þá segir í tilkynningunni frá fyrirhugaðri hlutafjáraukningu upp á 35 milljónir evra, eða um fimm milljarða króna. Henni sé ætlað að bæta eiginfjárstöðu félagsins til þess að koma í veg fyrir gjaldfellingu lána félagsins. Gjaldfellingarákvæði tengd eiginfjárhlutfalli sé að finna í lánasamningum félagsins en ekki afkomutengd.

Í tilkynningunni segir að tveir stærstu hlutahafar félagsins, Mowi sem fer með 51,8 prósenta hlut, og Síldavinnslan sem fer með 34,19 prósenta hlut, hafi þegar gefið vilyrði fyrir að skrá sig fyrir öllum hlutunum í samræmi við eignarhlutfall og á dagslokagengi félagsins í gær, 31,8 norskum krónum á hlut.

Í tilkynningu Síldarvinnslunnar til Kauphallar segir þannig að félagið muni skrá sig fyrir 40 prósentum hlutanna fyrir samtals fjórtán milljónir evra. Það gerir rétt rúmlega tvo milljarða króna …