Enn eru hafnar eitranir vegna laxalúsar á Vestfjörðum og það óvenju snemma þetta árið. Í fundargerð Fisksjúkdómnefndar, sem var að birtast, kemur fram að Arctic Sea Farm (Arctic Fish) hefur fengið leyfi til að hella eitrinu Salmosan vet í allar sjókvíar við Kvígindisdal í Patreksfirði.

Fisksjúkdómanefnd ítrekar áhyggjur sínar „af þróun mála hvað varðar lús á komandi sumri“ en nefndin bókaði í tvígang síðastliðið haust varnaraðarorð vegna vaxandi lyfjaónæmis laxalúsa í sjókvíaeldi við Ísland og aukningar á lús í sjókvíaeldi.

Nefndin er sjálfstæð í störfum sínum fyrir MAST, en engin viðbrögð er hafa fengist frá stjórnendum stofnunarinnar við ítrekuðum varnaðarorðum negfndarinnar né fagráðuneyti málaflokksins, atvinnuvegaráðuneytinu.

Viðvörunarljósin loga og bjöllurnar hringja en stjórnvöld láta einsog allt leiki í lyndi. Sést það skýrast í lagareldisfrumvarpi atvinnuvegaráðherra, þar sem velferð eldislaxanna er enginn gaumur gefinn né fyrirtækin skikkuð til að taka á þessu afleita ástandi.

Myndin sem hér fylgir sýnir eldislax sem var fangaður við köfun í Ísafjarðará síðastliðinn október. Sárin eftir laxalúsina eru hræðileg. Hún hefur étið hreistur og hold laxins þannig að sést í höfuðbein fisksins.

Svona fer vistin í sjókvíunum með eldisdýrin. Líklega er þessi eldislax kominn frá Daníel Jakobssyni og félögum hjá Arctic Sea Farm/Arctic Fish sem staðfest er að hafa ítrekað misst eldislaxa frá sér.