Bændur í Víðidal og eigendur lögbýla segja það ótækt að þurfa að standa í málaferlum við norska iðnrisa sem skráðir eru í kauphöll í Osló til að verja tilveru sína og náttúruauðlind sem nýtt hefur verið með sjálfbærum hætti kynslóðum saman.
Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn Veiðifélags Víðidalsár sendi frá sér eftir stjórnarfund í gærkvöldi. Í ályktuninni er jafnfram gjörvallt Alþingi hvatt til dáða og þessi krafist að felld verði niður „sérlög sem veita sjókvíaeldisfyrirtækjunum undanþágu frá lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda og setja lög um sjókvíaeldi þar sem náttúra og lífríki landsins er í öndvegi.“
Við stöndum heilshugar undir þessi orð og stöndum með fólkinu í Víðidal gegn yfirgangi norsku kauphallarfyrirtækjanna.
Sporðakösta Morgunblaðsins fjölluðu um fundinn og birtu ályktunina, sem hljóðar svo:
Veiðifélag Víðidalsár skorar á stjórnvöld að tryggja þegar í stað fjármögnun aðgerða þar sem leitað verður að eldislaxi og hann fjarlægður úr Víðidalsá sem og öllum öðrum ám þar sem villti íslenski laxinn hefur átt óðul sín í um tíu þúsund ár.
Þegar hafa verið fjarlægðir að minnsta kosti fimm staðfestir eldislaxar úr Haukadalsá og enn er bara ágúst. Megin göngutími eldislaxa sem sloppið hafa úr sjókvíum er í september og október. Í stóru sleppingu Arctic Fish haustið 2023 náðust alls sex eldislaxar úr Haukadalsá. Þetta er vísbending um að mögulega eigi eftir mikill fjöldi eldislaxa að hellast í ár landsins á komandi vikum.
Ekki dugar að bíða og vona að svo verði ekki. Stjórnvöld verða að tryggja að teymi sérfræðinga verði á landinu strax í byrjun september við leit í ám.
Stjórnvöld verða líka að tryggja fjármögnun aðkomu og útlagðan kostnað veiðifélaga vegna hreinsunarstarfs í ánum. Er sú krafa sett fram í ljósi þess að Arctic Fish hefur staðfastlega neitað að greiða kostnað veiðifélaga við að fjarlægja eldislaxa fyrirtækisins úr ám landsins haustið 2023. Verður því máli stefnt fyrir dómstóla í haust til innheimtu kostnaðarins.
Ótækt er að komin sé upp sú staða að íslenskir bændur og eigendur lögbýla þurfi að standa í málaferlum við fyrirtæki skráð í kauphöllinni í Osló í meirihlutaeigu norskra iðnrisa til að verja tilveru sína og náttúruauðlind sem hefur verið nýtt með sjálfbærum hætti kynslóðum saman.
Veiðifélag Víðidalsár skorar á gjörvallt Alþingi að fella niður sérlög sem veita sjókvíaeldisfyrirtækjunum undanþágu frá lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda og setja lög um sjókvíaeldi þar sem náttúra og lífríki landsins er í öndvegi.