Landvernd hélt á dögunum aðalfund þar sem samþykktar voru ýmsar brýnar ályktanir, þar á meðal um sjókvíaeldi.

„Aðalfundur Landverndar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna núverandi stefnuleysis stjórnvalda á sviði sjókvíaeldis. Lög og reglugerðir á þessu sviði hafa ekki þróast í takt við aukið álag á vistkerfi strandsvæða og verulegur skortur er á kröfum um mælanleg viðmið og verklag til að taka á misbrestum, meðal annars varðandi erfðablöndun, laxalús og lífrænt álag,“ segir í ályktuninni.

Þetta eru mikilvæg og réttmæt skilaboð sem við hjá IWF tökum heilshugar undir.

Alþingiskosningar eru eftir þrjá mánuði. Við hvetjum kjósendur til að fá svör frá frambjóðendum um afstöðu þeirra til sjókvíaeldis í opnum netapokum.

Við þurfum að vita hver af þeim sem bjóða sig fram til Alþingis eru sátt við að láta umhverfið og lífríkið niðurgreiða úrelta framleiðsluaðferðir.