Miklu verri tíðindi eru liklega framundan en sagt er frá í meðfylgjandi frétt, ef miðað við reynsluna frá 2023 þegar Arctic Fish lét siðast þúsundir eldislaxa sleppa úr sjókvíaeldi sínu á Vestfjörðum. Þá fóru eldislaxar fyrirtækisins að hellast inn í árnar fyrir alvöru um miðjan september.

Arctic Fish, dótturfyrirtæki norska sjókvíaeldisrisans MOWI, hefur ekki enn greitt íslenskum bændum útlagðan kostnað við hreinsunarstörfin fyrir tveimur árum.

Mbl.is fjallar um strokulaxana sem hafa veiðst síðustu daga, og ræddi við Björn K. Rúnarsson, einn af leigutökum Vatnsdalsár:

… „Við erum að eiga mjög lélegt ár eins og aðrar ár í Húnavatnssýslunum. Það er lítið af laxi og því vegur hver eldislax þyngra en þegar laxagengd er góð. Tíu eldislaxar sem ganga í Vatnsdalinn núna geta valdið meira tjóni til framtíðar en hundrað í ári þegar stofninn er sterkur. Eins og ég segi, mér finnst þessu máli tekið af léttúð og stemningin virðist vera á þann veg að menn voni að þetta hverfi. Þetta hverfur ekki. Haustið 2023 gekk mest af þessum kvikindum þegar leið á september. Maður óttast að það muni endurtaka sig núna því enginn virðist vita hversu margir eldislaxar eru á sveimi í sjónum. Ég geri meiri kröfur til MAST, Hafrannsóknastofnunar og Fiskistofu. Þessar stofnanir eiga að vera í liði með villta laxinum. Því miður er það ekki mín upplifun.“

Árnar í Húnavatnssýslum eru að eiga eitt sitt versta ár þegar kemur að laxgengd. Þetta sést best þegar skoðaðar eru veiðitölur. Einungis Miðfjarðará hefur gefið veiði sem getur talist þokkaleg miðað við samanburð við fyrri ár.

Í Víðidalsá hefur stjórn veiðifélagsins tekið ákvörðun um að banna veiði í efsta hluta Fitjár sem er hliðará Víðidalsár. Er Þetta gert vegna þess hversu fáir fiskar eru á þessu svæði en efsti hluti árinnar er mikilvægt hrygningarsvæði.

Í Hrútafjarðará hafa aðeins veiðst 112 laxar í sumar. Það er 69% minni veiði en í fyrra. Þar á bæ hafa menn miklar áhyggjur enda sáu norsku kafararnir þar eldislega laxa og náðu nokkrum þeirra. Þeir fóru þá aðeins í hluta árinnar. Nú liggur fyrir áætlun um að loka Hrútafjarðará með því að gera garð svipaðan og settur var í Miðfjarðará til að hefta för strokulaxa úr eldi. Samkvæmt heimildum Sporðakasta hafa þar til bærar stofnanir gefið grænt ljós á framkvæmdina.

Veiðifélag Þverár og Kjarrár fundaði í gær um stöðuna og þar eru uppi áætlanir um vöktun á ánni eftir að veiði lýkur. Samþykkt var á fundinum að fylgjast grannt með og vinna viðbragðsáætlun þannig að hægt verði að bregðast hratt við þróist mál á verri veg.

Eldislegur lax veiddist í Reykjadalsá í Borgarfirði og er hann í greiningu. Hrukku menn verulega við þegar sá fiskur kom á land enda er þetta fyrsti slíki laxinn sem veiðist í Borgarfirði. Landeigendur og leigutakar Þverár og Kjarrár horfa til þeirra aðgerða sem Miðfirðingar gripu til, það er að loka ánni með því að setja upp varnargarð.

Úr Miðfirði er það að frétta að nýgengnir smálaxar hafa verið að veiðast þar síðustu daga. Ekki margir en ljóst þykir að smálaxinn gengur í gegnum varnargarðinn eins og norskir kafarar töldu líklegt að myndi gerast. Þannig veiddist í fyrradag lúsugur smálax í veiðistaðnum Brekkulækur III, en sá staður er langt fyrir ofan varnargarðinn. Nokkrir bjartir smálaxar hafa einnig veiðst enn ofar. …