Við stöndum með íbúum í Vopnafirði og nágrenni gegn áformum um sjókvíaeldi í Seyðisfirði.
Morgunblaðið fjallar um baráttufund landeigenda og áhugamanna um laxveiðiár á Norðausturlandi.
…
Fundurinn var haldinn á Vopnafirði í dag á vegum Six Rivers Iceland sem leigir og rekur laxveiðiár í landshlutanum.
Yfirskrift fundarins var staða laxins, ógnir og tækifæri. Fimm fyrirlesarar fluttu erindi og ræddu stöðuna eins og hún blasir við. Stefán Hrafnsson gerði grein fyrir afar merkilegum rannsóknum sem Six Rivers Iceland stundar í ánum á svæðinu. Gunnar Örn Petersen framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga fór yfir störf landssambandsins og nefndi mikilvægi þess að raddir almennings heyrðust þegar kæmi að náttúruvernd og þeirri hagsmunabaráttu sem stöðugt stendur yfir.
Guðni Guðbergsson, sviðstjóri hjá Hafrannsóknastofnun fór yfir sviðið eins og það blasir við vísindunum.
Haraldur Eiríksson, leigutaki í Laxá í Kjós flutti áhugavert erindi þar sem hann setti fram þróun á verði veiðileyfi í nokkrum af helstu laxveiðiám landsins og voru tölurnar núvirtar. Þar mátti glögglega sjá að þegar laxastofnar eiga undir högg að sækja lækkuðu verðin umtalsvert. Haraldur taldi upp fleiri áhugaverðar ástæður sem hafa haft áhrif á verðmætasköpunina í gegnum tíðina.
Svo kom hún Katrín Oddsdóttir, lögmaður. Hún flutti hreina og klára eldmessu um reynslu sína af baráttu við stofnanir á Íslandi þegar kemur að ábyrgð og ákvarðanatöku í tengslum við leyfisveitingar og heimildir fyrir sjókvíaeldi. …
Pallborðsumræður fylgdu í kjölfarið og snerust þær að mestu um sjókvíaeldi og áhyggjur fundarmanna af stöðu þeirra mála. Guðni Guðbergsson frá Hafrannsóknastofnun fékk flestar spurningarnar og snerust þær að stærstum hluta um þær áhyggjur sem áður er vísað til. …