Sjókvíaeldismenn hafa undanfarna daga teflt fram mönnum sem halda því fram að hættan af erfðamengun frá eldisfiski sé nánast engin og taki áratugi að verða að veruleika. Þetta er alrangt.
Áhrifin geta komið fram samstundis segir Dr Kjetil Hindar í þessari grein, en hann er einn fremsti sérfræðingur heims í erfðafræði laxa. Sjókvíaeldismenn vísuðu meðal annars til rannsókna hans í skrifum sínum, en virðast hafa misskilið þær svona hrapalega.
Í greininni sem birtist í Fréttablaðinu segir Kjetil m.a.:
„Stýrðar tilraunir í náttúrulegum árkerfum í Noregi og Írlandi sýna að áhrif eldislaxa á villta stofna geta komið fram samstundis. Áhrifin geta falið í sér erfðafræðilegar og lífsögulegar breytingar og samdrátt í fjölgun viðkomandi stofna. Þetta gerist þrátt fyrir að hver eldislax hafi takmarkaða hæfileika til að komast af í náttúrunni.
Í erfðafræðilegri greiningu á um 150 villtum laxastofnum í Noregi (um þrír fjórðu villtra stofna landsins) sýndi helmingur stofna afgerandi erfðafræðilegar breytingar vegna hrygningar strokufisks úr eldi. Enn fremur sýndu rannsóknir á meira en 4.000 fullorðnum villtum löxum úr 62 ám, að erfðaþættir úr eldisfiski höfðu valdið breytingum á mikilvægum eiginleikum villts lax á borð við hvenær fiskurinn verður kynþroska og hversu hratt hann vex.
… Ef eldi í sjó við Ísland á að byggjast á stofni af norskum eldislaxi, myndi fyllstu aðgátar vera gætt ef notaður væri ófrjór fiskur í eldinu. Annar möguleiki er búnaður þar sem tryggt er að fiskur sleppur ekki. Ástæðan er sú að íslenskur lax er með aðra erfðafræðilega sögu en lax frá Noregi.“