Arnarlax tapaði 1,2 milljörðum króna (8,3 milljónum evra) á öðrum ársfjórðungi þessa árs þegar félagið þurfti að grípa til skyndislátrunar vegna útbreiddra nýrnasýkingar eldislaxa í kvíum á tveimur eldissvæðum. Þetta kemur fram í fréttinni sem hér fylgir. Alls nemur tapið á fyrri helmingi ársins um 1,7 milljarði króna.
Þar sem Arnarlax hafði ekki gert ráð fyrir slátrun á þessu tímabili þurfti félagið að selja eldislaxinn á algjöru hrakvirði, en aðeins hafði verið gert ráð fyrir að selja 1% af því magni sem félagið neyddist til að selja.
Tap á hvert framleitt kíló nemur 432 krónum (2,9 evrum). Það þýðir að fyrirtækið greiddi um 2.600 krónur með hverjum sex kilóa fiski sem það seldi.
Athygli vekur að ekkert hefur heyrst um þetta risaáfall frá Fisksjúkdómanefnd Matvælastofnunar.
Hitt liggur ljóst fyrir að Arnarlax mun ekki greiða tekjuskatt á þessu ári frekar en fyrri ár (utan eitt þegar það greiddi lága upphæð) frá því félagið hóf hér starfsemi 2007.
Fyrir fjórum dögum var sagt frá því að Arctic Fish, hittt stóra sjókvíaeldisfyrirtækið á Vestfjörðum, hefði tapað 637 milljónum á fyrri hluta ársins og væri tilneytt til að fara í hlutafjáraukningu til að koma í veg fyrir að lánveitendur gjaldfelli lán félagsins.
Á sama tíma eru þessi fyrirtæki að losa gríðarlega mengun í firði landsins og eyðileggja villta laxastofna sem hundruðir bændafjölskyldna hafa treyst á sem eina af lykilstoðum fyrir tilveru sinni í margar kynslóðir.
Ekki er hægt að standa mikið heimskulegra að málum en þetta.
Frétt fagmiðilsins Seafood Source:
Iceland-headquartered Icelandic Salmon, which owns fish-farming firm Arnarlax, was forced to conduct an accelerated harvest in the second quarter of 2025 in response to an outbreak of bacterial kidney disease (BKD) at two farming sites.
This resulted in a Q2 harvest of 4,000 gutted weight tons (GWT), compared to 700 GWT in the same period a year prior. Because the need to harvest quickly came at the end of the three-month period, when market prices were at their lowest, the company recorded a Q2 EBIT loss of EUR 8.3 million (USD 9.6 million), compared to a loss of EUR 3.8 million (USD 4.4 million) in Q2 2024.
Due to the larger volumes harvested, the firm achieved an operating income of EUR 25 million (USD 29 million), compared to EUR 9.7 million (USD 11.3 million) a year prior, while its operational EBIT per kilogram in the quarter totaled a loss of EUR 2.90 (USD 3.66) – up from a loss of EUR 5.37 (USD 6.23) in Q2 2024. …