Aðstæður eldislaxanna í sjókvíunum í Reyðarfirði, þar sem blóðþorri greindist, voru svo slæmar að ónæmiskerfi þeirra brast og veira sem hefði átt að vera þeim meinlaus stökkbreyttist í banvænan sjúkdóm.
Þetta er kenning dýralæknis fisksjúkdóma hjá MAST, sem bendir á í frétt MBL að vetrarveður, marglyttur og þörungar hafi gert umhverfið svona slæmt fyrir eldidýrin.
Og þá er spurt. Hví leyfir MAST dýrahald við þessar aðstæður? Grípur þessi stofnun aldrei til aðgerða fyrr en það er of seint?
Skv. umfjöllun Morgunblaðsins:
„Ekki er vitað um ástæður sýkingarinnar. Gísli Jónsson telur líklegt að umhverfisaðstæður valdi því að veiran hafi stökkbreyst, úr meinlausri laxaflensu yfir í meinvirkt afbrigði. Hann bendir á að álag hafi verið á kvíunum á Gripalda. Árið byrjaði með óveðri sem leiddi til þess að fóðurprammi sökk við eldiskvíarnar. Síðar bættist við þörungablómi í vor og marglytta lagðist að í haust. Segir Gísli hugsanlegt að ónæmi fisksins hafi dalað í þessu volki og það orðið til að skapa tækifæri fyrir veiruna.“