Hér er hægt að sjá stiklu úr nýrri heimildarmynd sem heitir Árnar þagna og er eftir Óskar Pál Sveinsson. Myndin fjallar um áhrif sjókvíaeldis á laxi á lífríki og afkomu bænda sem hafa byggt lífsafkomu sína á hlunnindum af sjálfbærum stangveiðum í margar kynslóðir í Noregi og á Íslandi.
Myndin verður sýnd í nóvember í öllum kjördæmum í samvinnu við veiðifélög og náttúruverndarsamtök og er frítt inn.
Að lokinni sýningu verða umræður um efni hennar milli frambjóðenda og kjósenda á hverjum stað.
Í júní á þessu ári fyrirskipaði Umhverfisstofnun Noregs lokun 33 af þekktustu laxveiðiám Noregs vegna skaðans sem sjókvíaeldi á laxi og loftslagsbreytingar hafa valdið á villtum laxastofnum.
Á einu augnabliki hvarf stór hluti lifibrauðs fjölskyldna sem hafa byggt afkomu sína á hlunnindum af stangveiði í marga ættliði. Í myndinni eru viðtöl við eigendur norskra laxáa, sem tekin voru nokkrum dögum eftir að fótunum var kippt undan tilveru þeirra, og fólk í sveitum Íslands um þá framtíð sem mögulega bíður þess og fjölskyldna þeirra.
Frumsýning á Akureyri 6. nóvember. Dagsetningar og tími á öðrum stöðum verður auglýst síðar.