Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum tökum heilshugar undir orð Árna Baldurssonar. Látum heyra í okkur öllum 🙏

„Jörundur er ekki komin tími til með að skipta um skoðun áður en síðasti laxinn er drepinn og standa þétt með laxinum, náttúrunni og félagsmönnum þínum … nágrönnum. Ykkur sem er annt um íslenska náttúru endilega látið heyra hátt í ykkur.“

Sumarlok við Sogið.
Fallegt er nú veðrið, áin dásamlega falleg , stærsta ferskvatnsá Íslands tignarleg og voldug og var fyrir löngu síðan ein besta laxveiði á Íslands. Ég sit við árbakkann í heilan eftirmiðdag að kveðja ána og þakka henni fyrir sumarið. Það er síðasti dagur veiðisumarsins 2024. Ég sit við árbakkann við gjöfulan veiðistað … það er gnístandi þögn, náttúran er líflaus með öllu …. Það er eins og hönd dauðans sé haldið yfir ánni, ekkert líf ekkert, enginn lax að bylta sér … enginn laxa að para sig .. engin hreyfing … ekkert. Ég sit við fallegu ána Sog í Árnessýslu, áin er langt langt frá því að vera sjálfbær síðustu 10 árin, það loga öll rauð ljós náttúrunnar aðvörunarljós .. áin er komin að fótum fram af manna völdum. Heildarveiði þessarar virðulegu laxveiðiár er rúmir 100 laxar í sumar sem er langt frá því að viðhalda stofni hennar þótt veiðimenn allir sem einn sameinist um að sleppa hverjum einasta laxi aftur í ána til sinna heimkynna. Á hverju einasta ári hins vegar drepa netaveiðimenn Ölfusár og Hvítár, sem ekki hafa leigt frá sér réttinn, laxastofn Sogsins undir ógnar sterkri forystu Jörundar Gaukssonar sem jafnframt er formaður Veiðifélags Árnesinga. Nú er svo komið, þótt það sé kannski ekki við hæfi, að ég verð að óska Jörundi Gaukssyni til hamingju með árangurinn, mission complete, Sogið er farið, Brúará og þverár hennar farnar, þetta eru all rústir einar. Jörundur er með fiskifræðing á sínum snærum, ágætan mann Magnús Jóhannsson, sem hefur gefið uppám Árnesýslu góð ráð svo sem ekki að drepa einn einasta lax, það þarf öllum stangveiddum laxi að vera sleppt til að halda uppi hrygningu í ánum þannig að þær allavegana smá tóri, þá væntanlega til að halda lífi í netaveiðum Jörundar. Magnús minnist aldrei á veiðistjórnun neta, eða setja kvóta á þessar hömlulausu veiðar sem eru að gera útaf við uppár Árnessýslu… ekkert ekki eitt orð , netavélarnar bara stækka breikka og lengjast. Eftirlitsstofnunin Fiskistofa ….. alveg eins og þeim sé slétt sama um allt þetta hömlulausa kvótalausa laxadráp… af hverju grípur Fiskistofa ekki inn í? Þetta röfl í mér hefur trúlega ekkert að segja … og örrugglega of seint að grípa inn í og bjarga þessum Íslensku gersemis ám. En hvað veldur þessari ótrúlegu þráhyggju og nautn að drepa allan þennan lax sem er á svona miklu undanhaldi, af hverju á himnum ofan verður að drepa hann allan ? Á sama tíma eru greiðslur boðnar til að vernda laxinn, hætta að drepa hann og taka netin upp. Formaðurinn sjálfur Jörundur þvertekur að taka við greiðslum fyrir netaréttinn og hótar að halda áfram að veiða sem aldrei fyrr og hvetur sína menn að nýta veiðirétt sinn til fullnustu og slær vel í klárinn. Laxinn má ekki lifa, trúlega allt of seint að gera eithvað hvort sem er, en eg fann mig knúinn til að skrifa þetta þegar ég kvaddi Sogið í gær …. Sorglega fisklaust. Jörundur er ekki komin tími til með að skipta um skoðun áður en síðasti laxinn er drepinn og standa þétt með laxinum, náttúrunni og félagsmönnum þínum … nágrönnum. Ykkur sem er annt um íslenska náttúru endilega látið heyra hátt í ykkur, þetta er bara búið. Myndin er af kvikmyndafólki að búa til heimildarmynd um síðasta lax Sogsins….