Við mælum með þessu viðtali við Árna Baldursson sem Eggert Skúlason tók.

Staðan í Noregi er sorgleg. Umgengni Norðmanna við villtu laxastofna hefur verið skelfileg. Á það bæði við um skaðann sem þeir hafa leyft sjókvíaeldinu að valda og glórulausa veiðiaðferðir þeirra á villtum laxi.

Píratar er eina stjórnmálahreyfingin á Alþingi sem hefur tekið afgerandi stöðu gegn sjókvíaeldi vegna skaðans sem þessi iðnaður veldur á lífríki og umhverfi landsins.

Árni var gestur Dagmála í dag sem er aðgengilegur áskrifendum Morgunblaðsins.

Á vef Morgunblaðsins segir m.a.:

Árni Bald­urs­son seg­ist ekki skilja af hverju eng­inn stjórn­mála­flokk­ur á Íslandi hafi tekið „fisk­eld­is­málið“ í fangið og eignað sér það. Hann seg­ist sann­færður um að sá stjórn­mála­flokk­ur sem það geri muni sópa til sín fylgi. …

Árni seg­ir að rík­is­stjórn­in þurfi að ákveða sig hvort þeir vilja fórna ís­lenskri nátt­úru og fylla norska vasa af ís­lensku gulli eða standa með ís­lenskri nátt­úru og fólk­inu í land­inu. Það sé ein­fald­lega ákvörðun menn þurfi að taka en þeir sömu stjórn­mála­menn skuli líka átta sig á því þeirri ákvörðun fylg­ir ábyrgð. „Þetta verður geymt en ekki gleymt.“

Fáir þekkja bet­ur til á hinum alþjóðlega markaði þegar kem­ur að veiði á laxi, en Árni Bald­urs­son. Hann hef­ur veitt í öll­um lönd­um þar sem Atlants­hafslax­inn á sér heim­kynni. Hann þekk­ir sögu fisk­eld­isæfinga Norðmanna í Chile. Vest­ur­strönd Skot­lands þar sem fisk­eldi er stundað er nán­ast orðin lax­laus og Kan­ada­menn eru bún­ir að leggja til fimm ára aðlög­un­ar­tíma áður lax­eldi í sjókví­um verður aflagt.

Árni tek­ur hins veg­ar und­ir það að umræðan um þessi mál hafi verið á köfl­um of mik­il hróp og frammí köll. Það breyti því hins veg­ar ekki að stjórn­mála­menn verði að horfa til skaðans í Nor­egi þegar þing kem­ur sam­an að hausti og tek­ur á nýj­an leik upp frum­varp um fisk­eldi.