MAST segir aðgæsluleysi Arnarlax hafa verið vítavert og afleiðingar þess mjög alvarlegar.

Skýrar vísbendingar eru um að stjórnendur Arnarlax hafi ákveðið að hylma mánuðum saman yfir að um 82.000 fiskar höfðu sloppið úr einni sjókví fyrirtækisins. Á sama tíma og fóðurgjafir tífölduðust í öðrum kvíum hélst fóðurgjöfin óbreytt í kvínni sem eldislaxarnir sluppu úr.

Matvælaráðuneytið staðfesti 120 milljón króna sekt MAST á hendur Arnarlaxi fyrir aðgæslu- og gáleysi fyrirtækisins.

Í frétt Vísis segir:

Í úrskurði ráðuneytisins er saga málsins rakin. Í ágúst 2021 var MAST tilkynnt um gat í kví Arnarlax. Sumarið 2022 fór að bera á „óeðlilegri fisktegund“ í ám innfjarða Arnarfjarðar. Í kjölfarið hófst rannsókn á málinu og fundust alls 24 laxar sem hægt var að rekja til umræddar kvíar.

Í október 2022 var lokið við slátrun á fiskum úr umræddri kví. Fjöldi laxa í henni voru rúmlega 18 þúsund, en Matvælastofnun hafði fengið upplýsingar um að 137 þúsund fiskar hefðu farið í kvína, og að skráð afföll væru 33 þúsund.

Þar á eftir tilkynnti MAST um rannsókn á misræmi í upplýsingum frá fyrirtækinu, þar sem mikill munur væri á fjölda fiska sem gefin var upp í skýrslum og fjöldanum sem kom í ljós við slátrun.

Í úrskurði ráðuneytisins kemur fram að rannsókn MAST hafi að miklu leiti beinst að fóðurnotkun í umræddri kví. Fóðurgjöfin hafi verið jafn mikil og í öðrum sambærilegum kvíum, þangað til skyndilega í júní 2021, en þá urðu skörp skil á milli. Fóðurgjöf í umræddri kví hélst nánast alltaf sú sama, en fóðurgjöf annarra kvía hækkaði stöðugt. Í september 2021 var hún orðin tífalt hærri en í maí sama ár.

Arnarlax mótmælti því ekki að fóðurgjöfin í umræddri kví fæli í sér frávik, en vildi meina að ekki væri hægt að fullyrða að það orsakaðist af því að fiskar hefðu strokið. Ástæðan fyrir því er sú að margþættar ástæður geta verið fyrir minni fóðurgjöf.

Ráðuneytið fellst á það í úrskurði sínum, að margþættar ástæður geti legið fyrir, en bendir á að þá hefðu álíka breytingar átt að eiga sér stað í öðrum sambærilegum kvíum þar sem frávik urðu ekki. Arnarlax hefði því mátt ætla að fiskur hefði sloppið úr kvínni.