Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum höfum ásamt NASF, landeigendum og íbúum á Vestfjörðum kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála útgáfu Matvælastofnunar (MAST) á rekstrarleyfi handa Arnarlaxi fyrir sjókvíaeldi á laxi í utanverðu Ísafjarðardjúpi, út af Drangsvík, Eyjahlíð og Óshlíð.

Meðal kærenda er ábúandi á eyjunni Vigur. Fjölskylda hans býr í Vigur allt árið og byggir lífsviðurværi sitt á náttúrugæðum og dýralífi eyjunnar.

Stærsta fjárhagslega stoð fjölskyldunnar er ferðaþjónusta en í Vigur kemur fjöldi ferðamanna ár hvert til að upplifa óspillta náttúru. „Eðli máls samkvæmt kemur allt fólk siglandi til Vigur og því er siglingaröryggi grundvallarforsenda lífs kæranda og fjölskyldu hans,“ eins og segir í kærunni.

Rekstrarleyfi MAST var gefið út í júní þvert á afgerandi mat Samgöngustofu um að óheimilt væri að veita leyfi á tveimur eldissvæðanna með tilliti til siglingaöryggis.

Lesa má um furðulega afgreiðslu MAST á Vísi: „Leyfið gefið út í trássi við öryggi sjófarenda.

Full ástæða er til að velta fyrir sér persónulegri ábyrgð starfsmanna MAST, sem tóku þessa ákvörðun og skrifa undir leyfið, ef slys verða vegna staðsetninga sjókvíanna á siglingaleiðum þar sem Samgöngustofa segir að þær megi ekki vera.

Stofnanir hafa ekki sjálfstæðan vilja. Það er fólk sem stýrir þeim og hlýtur að þurfa að bera ábyrgð á afleiðingum verka sinna.

Rauði punkturinn á kortinu er í Ísafjarðardjúpi.