Framhaldsskólaneminn Daníel Þröstur Pálsson skrifar kröftuga grein sem birtist á Vísi í dag.
Ímyndið ykkur læk á íslandi, með sínum fallegum láa gróðri kringum hann, hrossagaukur syngjandi sitt fallegasta eða kannski lóa. Maður standandi í miðjuni með sína veiðistöng í sínum vaðbuxum, fylgjandi íslenskri hefð sem hefur verið stunduð í áratugi í samlyndi við náttúruna, kynslóðum saman. Svo ef þú vilt full klára myndina má bæta við Pólókexi á bakkann, nauðsynlegt í góða veiðiferð.
Þessi fallega og kannski rómantíska mynd gerist hvert einasta sumar um nærri því allt land. En því miður mun hún ekki endist út næsta áratug ef ekkert er gert til að breyta stöðunni. Ástæðan? Sjókvíeldi. Vandamálið er að oftast, ef ekki alltaf, er notast við laxa frá erlendri grundu. Komin er því upp sú staða að það eru um 15,900,000 norskir laxar í sjókvíum við strendur Íslands. Til samanburðar er stærð villta laxastofnsins um 50,000-80,000. Þetta gerir að verkum að íslenski laxinn er sérstaklega viðkvæmur fyrir öllum breytingum, sérstaklega ef norskir laxar sleppa úr kvíum.
Því miður hefur það gerist, ekki einu sinni, heldur margoft. Þrátt fyrir fullyrðingar fyrirtækja sem stunda sjókvíeldi, eins og Arctic Sea Farm, um að fiskarnir í kvíunum séu ófrjóir og geta því ekki erfðablandast við íslenska stofnin jafnvel þegar þeir sleppa. Annað hefur komið í ljós. Til dæmis var stór hluti þeirra laxa sem sluppu úr kvíum Arctic Sea Farm árið 2023 við kynþroska. Þrátt fyrir ítrekaðar fullyrðingar Arctic Sea Farm um að laxarnir myndu ekki verða það.
Sjókvíaeldi og endurteknar slysasleppingar, ásamt öðru, er búið að gera það að verkum að íslenski laxinn er kominn í útrýmingarhættu. Laxinn sem meira en 2,000 lögbýli treysta á tekjur frá. Dýrið sem hefur vaxið og dafnað samhliða íslensku þjóðinni í meira en þúsund ár.
Spurningin er ekki hvort íslenski laxastofninn mun deyja út, heldur hvenær. Nú dugar ekki að setja sektir sem fyrirtæki finna ekki fyrir. Yfirvöld þurfa að taka skrefið, eina sem mun tryggja að íslenski laxinn lifi af og banna sjókvíaeldi við strendur íslands, eða í það minnsta setja lögbann við að hafa kynþroska laxa í sjókvíeldum. Því miður er bara einn stjórnmálaflokkur búin að styðja þessar nauðsynlegu breytingar, og það eru Píratar. Sem betur fer hafa viðbrögð við frumvarpi ríkistjórnar um lagareldi sýnt fram á hversu mikil andstæða er til staðar fyrir sjókvíaeldi. Ég vona að þessi viðbrögð munu leiða til þess að yfirvöld vakna við vondan draum og banna þetta stór slys sem er að eyðileggja land okkar og framtíð.