Nú hefur það verið staðfest með erfðarannsóknum sem lá þó nánast fyrir áður. Eldislaxarnir sem eru að vaða upp í heimaár íslenska villta laxins koma úr sjókví fyrirtækisins Arctic Fish.
Í fréttatilkynningu sem var að birtast á vefsvæði MAST koma fram þær ótrúlegu upplýsingar að Arctic Fish sinnti ekki neðansjávareftirliti með umræddri kví í Patreksfirði frá miðjum maí til 20. ágúst þegar götin loksins uppgötvuðust. Í 95 daga! Rúma þrjá mánuði!
Þetta er glæpsamlegt framferði sem MAST hlýtur að kæra til lögreglu. Fyrir því eru skýrar heimildir í fiskeldislögum:
22. gr. Um refsingar.
Það varðar stjórnarmenn og framkvæmdastjóra rekstrarleyfishafa [eða skráningarskylds aðila skv. 5. gr.] 1) sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, ef sakir eru miklar:
a. ef eldisfiskur sleppur úr fiskeldisstöð þar sem umbúnaði við fiskeldið hefur verið áfátt vegna athafna eða athafnaleysis þeirra sem framið hefur verið af ásetningi eða gáleysi.
Eina spurningin er hvort þetta framferði stjórnenda Arctic Fish var af gáleysi eða ásetningi. Fyrir liggur játning þeirra um athafnaleysið.
Í tilkynningu Mast segir:
Matvælastofnun hafa borist upplýsingar um upprunagreiningu Hafrannsóknastofnunar á meintum eldislöxum sem veiðst hafa í Patreksfirði (6), Örlygshöfn (2), Sunndalsá (6), Mjólká (1), Laugardalsá (1), Ísafjarðará (1), Selá í Ísafjarðardjúpi (2), Miðfjarðará (1), Hópinu (1), Víðidalsá (1), Vatnsdalsá (3), Laxá í Dölum (1) og Staðarhólsá/Hvolsá (1).
Alls voru 34 laxar sendir til greiningar og reyndust sjö þeirra sem veiddust í Mjólká vera villtir. Af hinum 27 var einn eldislax sem ekki var hægt að rekja en hinir 26 voru eldislaxar sem var hægt að rekja til sex hænga sem voru notaðir til framleiðslu á seiðum sem sett voru út á eldissvæði Arctic Sea Farm við Kvígindisdal í Patreksfirði haustið 2021. Tveir af þessum sex hængum voru einnig notaðir til framleiðslu á seiðum sem sett voru út á eldissvæði Arnarlax við Tjaldanes í Arnarfirði haustið 2021.
Arctic Sea Farm tilkynnti 20. ágúst sl. að tvö göt hefðu fundist á 2.5 metra dýpi í kví nr. 8 á eldissvæði fyrirtækisins við Kvígindisdal í Patreksfirði og óskaði Matvælastofnun eftir því að slátrun hæfist samstundis í kví nr. 8. Slátruninni lauk 29. ágúst sl. og er áætlað að slátrun á eldissvæðinu öllu verði lokið um miðjan september.
Að sögn forsvarsmanna Arctic Sea Farm er möguleg orsök gatanna sú að starfsmenn fyrirtækisins höfðu fært fóðurdreifara í kvínni að kvíarbrún og hafa tvö lóð sem héngu neðan á fóðurdreifaranum að öllum líkindum nuddast við nótina og myndað götin. Búnaðurinn var á þeirri hlið kvíarinnar þar sem götin mynduðust á tímabilinu 8. – 20. ágúst síðastliðinn, mögulegt er að götin hafi myndast á því tímabili.
Jafnframt kom í ljós við rannsókn málsins að neðansjávareftirlit fyrirtækisins við kví nr. 8 var ekki framkvæmt frá miðjum maí sl. og þar til götin uppgötvuðust 20. ágúst sl. Aðrir netapokar eldissvæðisins voru skoðaðir með reglubundnum hætti.
Til Hafrannsóknarstofnunar eru enn að berast laxar sem sendir verða til erfðagreiningar. Matvælastofnun veitir frekari upplýsingar þegar niðurstöður liggja fyrir varðandi erfðagreiningu laxa og uppruna þeirra.