Einn forráðamanna Arctic Fish lét hafa eftir sér í tengslum við þetta nýjasta áfall fyrir sjókvíaeldisiðnaðinn að það ætti „ekki að geta gerst“ að fiskur sleppi úr netapokunum.
Þau orð kjarna afneitun fulltrúa sjókvíaeldisfyrirtækjanna gagnvart þeim skaða sem starfsemin veldur á lífríkinu. Auðvitað veit talsmaður Arctic Fish vel að sleppingar eldislax úr sjókvíum er óhjákvæmilegur hluti þessa iðnaðar. Það ber merki um sérstaka forherðingu að halda öðru fram.
„Fjórir eldislaxar veiddust í net Arctic Fish sem fyrirtækið lagði undir eftirliti Fiskistofu nálægt ósi Ósár í Patreksfirði og í ánni sjálfri síðastliðinn miðvikudag. Matvælastofnun rannsakar hversu margir fiskar hafa sloppið.
Tvö göt komu í ljós á kví númer átta hjá Arctic Fish í Kvígindisdal í Patreksfirði síðasta sunnudag. Greindi fyrirtækið sjálft frá því í tilkynningu en í kvínni eru 72.522 fiskar. Voru götin hvort um sig 20×30 sentímetrar.
Vísir leitaði viðbragða hjá Fiskistofu vegna málsins. Í kjölfarið birti stofnunin tilkynningu á vef sínum. Þar segir að engir fiskar hafi veiðst í net sem Arctic Fish hafi lagt við sjókvína.
Segir í tilkynningunni að í framhaldi hafi verið viðhaft eftirlit meðal annars með dróna og sást til fiska í Ósá í Patreksfirði þriðjudaginn 22. ágúst. Fiskistofa gerði viðkomandi landeigendum viðvart og mælti fyrir um að Arctic Fish skyldi leggja net í sjó nálægt ósi Ósár, 23. ágúst, og einnig voru net lögð í Ósá. Var það gert og var eftirlitsmaður Fiskistofu með við lagningu neta. …
Þá segir í tilkynningu frá Matvælastofnun að stofnunin hafi strax hafið rannsókn á málinu. Sú rannsókn standi yfir.
Segir að rannsókn stofnunarinnar miði að því að finna út ástæðu fyrir götunum, fjölda fiska sem hafi strokið og einnig að kanna hvort innri gæðaferlum fyrirtækisins hafi verið fylgt í hvívetna.“