Fyrir nokkrum dögum birtist grein frá starfsmanni Landsvirkjunar þar sem því var haldið fram að vegna virkjana í Þjórsá hefði villtur laxastofn árinnar „margfaldast að stærð“. Fulltrúi Landsvirkjunar lét þess hins vegar ekki getið að á sínum tíma var gengið þannig fram við virkjunarframkvæmdirnar að þær stórsköðuðu lífríkið og villta laxinn en mótvægisaðgerðir, knúnar fram af heimafólki, hefðu síðan náð að rétta þann hlut að einhverju leyti.
Þetta er eins og brennuvargur sem kveikir í húsi en hreykir sér svo af því að hafa reist það við að hluta áður en hann ætlar svo að kveikja í aftur.
Jón Árni Vignisson, sem á jörð á bökkum Þjórsár, rifjar þessa sögu upp í grein sem birtist á Vísi:
„Var staðið þannig að verki að lífríki Þjórsár skaðaðist verulega, aðallega vegna gríðarlegs magns af jarðvegi sem rutt var út í ána. Farvegur Þjórsár var látinn taka við óþekktu magni jarðefna og flytja til sjávar. Á leið sinni niður farveginn lagðist efnið yfir hrigningasvæði í stórum stíl. Í mörg ár á eftir mátti sjá afleiðingar þessa verknaðar.“
Í greininni, sem birtist á Vísi segir Jón Árni Vignisson:
„Í grein sinni heldur Landsvirkjun því fram að fiskstofnar Þjórsár hafi vaxið og dafnað vegna framkvæmda fyrirtækisins í ánni og sé það fyrst of fremst því að þakka að sex virkjanir Landsvirkjunar í Þjórsá hafi haft þessi jákvæðu áhrif.
Í Þjórsá eru tvær virkjanir, Búrfell 1 og Búrfell 2, báðar langt ofan við fiskgenga hluta árinnar. Sultartangavirkjun er enn innar í landinu og er hún knúin áfram af Þjórsá og Tungnaá. Aðrar virkjanir eru ekki í Þjórsá.
Framganga Landsvirkjunar við Þjórsárvirkjanirnar tvær var með þeim hætti að eftir gerð Búrfellvirkjunar 1, var á níunda áratug síðustu aldar ráðist í það verkefni að breyta umhverfi virkjunarinnar, með það að markmiði að mögulegt yrði að byggja Búrfell 2. Var staðið þannig að verki að lífríki Þjórsár skaðaðist verulega, aðallega vegna gríðarlegs magns af jarðvegi sem rutt var út í ána. Farvegur Þjórsár var látinn taka við óþekktu magni jarðefna og flytja til sjávar. Á leið sinni niður farveginn lagðist efnið yfir hrigningasvæði í stórum stíl. Í mörg ár á eftir mátti sjá afleiðingar þessa verknaðar.
Veiðifélag Þjórsár kom því til leiðar að Landsvirkjun byggði upp fiskstofna árinnar enda skaðinn verulegur sem fyrirtækið hafði valdið. Varð að samkomulagi að Landsvirkjun myndi rækta ána upp með seiðasleppingum og gerð fiskstiga við fossinn Búða, í þeim tilgangi að stækka búsvæði í stað þeirra sem eyðilögðust af völdum Landsvirkjunar. Fiskstiginn var tekinn í notkun árið 1991 og seiðum var sleppt í ána til ársins 2005.
Frá árinu 2010 hefur Veiðifélag Þjórsár vakið athygli nefndarsviða Alþingis, Fiskistofu, Orkustofnunar og sveitarstjórna á vanköntum á hugmyndum Landsvirkjunar varðandi Hvammsvirkjun í Þjórsá. Erlendir sérfræðingar í líffræði og fiskifræðingar vara við hugmyndum Landsvirkjunar og telja mýmörg dæmi til um mannvirki af þeirri tegund sem Landsvirkjun telur vera verkfræðilega snilld. Þau mannvirki eiga það flest sameiginlegt að hafa brugðist væntingum að mestu leiti, sérstaklega varðandi seiðaveitingar. Veiðifélag Þjórsár telur skorta verulega á að unnið hafi verið að undirbúningi Hvammsvirkjunar á fullnægjandi hátt. Verði af framkvæmdum eins og hönnunargögn dagsins í dag gera ráð fyrir eru líkur á að lífríki Þjórsár skaðist verulega.
Það er merkilegt að sjá starfsmenn Landsvirkjunar ætla að breyta sögunni með þeim hætti að senda frá sér greinar eins og þá sem birt var á Vísi.is 6.júní sl.
Landsvirkjun virðist vera heimilt að sólunda fjármunum til að kaupa sér þær niðurstöður sem hentar hverju sinni. Hafa útsendarar Landsvirkjunar verið látnir ganga á milli sveitarfélaga, með alla vasa fulla af fé almennings, í þeim tilgangi að tryggja að réttur íbúa sveitarfélaga til að hafa áhrif á gang mála í sinni heimabyggð sé fótum troðin.
Fyrir liggur beiðni Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá. Í næstu viku mun sveitarstjórnafólk í Rangárþingi ytra og Skeiða og Gnúpverjahrepp ætla að gefa út framkvæmdaleyfi til handa Landsvirkjun að ráðast gegn lífríki Þjórsár í þessum sveitarfélögum. Sú afgreiðsla mun gleðja þann hluta kappsfullra starfsmanna Landsvirkjunar sem unnið hafa þessu máli brautargengi, enda ekki öðru vanir en fá sitt í gegn, sama hvað það kostar.
Margt hefur verið sagt og skrifað um vænt neikvæð áhrif fyrirhugaðrar Hvammsvirkjunar í Þjórsá á fiskstofna árinnar. Er það af gefnu tilefni.“