Eftirlitsstofnun EES-samningsins (ESA) hefur úrskurðað að íslenska ríkið hafi gerst brotlegt við átta greinar í reglum EES um mat á umhverfisáhrifum þegar það breytti lögum um fiskeldi í október 2018 og útilokaði almenning frá umfjöllun um bráðabirgðaleyfi.
Þessi framganga ráðherranna hryggir okkur. Annar er nú horfinn úr pólitík en hinn, sem mikið var vænst af, er þar enn.
Því miður brást þáverandi umhverfisráðherra algjörlega í þessu máli: umhverfinu, lífríkinu og almenningi sem hann á að þjóna.
Skv. frétt Fréttablaðsins:
„ESA átelur íslenska ríkið og sérstaklega fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmund Inga Guðbrandsson, og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristján Þór Júlíusson, fyrir að bregðast ekki við bráðabirgðaúrskurðinum, fyrir að nota hin röngu lög til þess að veita starfs- og rekstrarleyfi til fiskeldisfyrirtækja án umhverfismats og fyrir að gera brotin verri með aðgerðaleysi sínu þegar leyfin voru ekki afturkölluð.“