Kjarninn segir frá hrikalegu umhverfisslysi við Noreg þegar tugþúsundir eldislaxa sluppu úr sjókví á dögunum. Samkvæmt opinberum tölum sluppu um 39.000 eldislaxar. Tekist hefur að fanga um 13.200.
Heimildarmenn okkar í Noregi segja að líklega hafi miklu fleiri laxar sloppið en gefið er upp og benda á að afar sjaldgæft er ef meira en 10 prósent veiðist af eldislaxi sem sleppur.
Sleppilaxinn úr sjókvíaeldinu hefur dreift sér yfir stórt svæði við strönd Noregs og óttast heimafólk mjög að hann eigi eftir að ganga upp í fjölmargar ár og blandast villtum laxi með skelfilegum afleiðingum fyrir getu þeirra til að lifa af í náttúrunni.
Skv. umfjöllun Kjarnanans:
„Um 39 þúsund laxar, líklega samtals um 180 tonn, sluppu úr sjókvíum fyrirtækisins Midt-Norsk Havbruk AS við eyjuna Dolma í Þrændalögum í ágúst. Um leið og atvikið uppgötvaðist var hafist handa við að reyna að fanga laxana en það skilaði litlu og fékk fyrirtækið framlengdan frest yfirvalda til verksins. Nú er hins vegar ljóst að aðeins hefur tekist að ná rúmlega 13.200 löxum eða um þriðjungi þeirra sem sluppu.
Laxarnir hafa dreifst um stórt svæði, synt norður á bóginn og „leitarsvæðið“ því verið stækkað enda þekkja fiskar engin sýslumörk frekar en önnur dýr. …
Yfirvöld í Nordland-fylki segja að laxana megi finna í miklum mæli allt frá Þrændalögum til Rana í norðri og og í öllum fjörðum á þeim slóðum. Þá hafa margir þeirra sést í vatnsföllum og árósum. Í mynni Loms-árinnar í Velfirði hafa til að mynda um 700 eldislaxar verið veiddir.“