Spurningin í fyrirsögninni hér er réttmæt hjá Bubba.
„Mengunin sem kemur frá þessum kvíum er rosaleg og hefur gríðarleg áhrif á lífríkið, þess vegna er kveðið á um að það þurfi að hvíla svæðið í átta mánuði. Það er til þess að lífríkið í firðinum geti jafnað sig.
Í úrbótaáætlun frá Arnarlaxi kemur fram að þeir vilji undanþágu frá tilskildum hvíldartíma svæðisins og biðji um að hann verði að lágmarki 90 dagar en ekki átta mánuðir. Ekki kemur fram þar hvers vegna þeir kjósa að fara ekki eftir því sem þeim ber að gera.
Svona gera menn þetta kannski í Noregi en þetta á ekki að gerast hér. Og á meðan þeir hjá Arnarlaxi segja að þessi fyrirspurn sé í vinnslu segir Umhverfisstofnun að ekkert hafi komið inn á borð til þeirra um undanþágu og sendir skilaboð til norsku eigendanna: Það er allt í góðu að brjóta hér reglur.
Þetta er algjörlega óboðleg stjórnsýsla og vítaverðir stafshættir sem skaða íslenska náttúru.“
Hvað er í gangi? Af hverju grípur Umhverfisstofnun ekki í taumana?