Laxeldi í sjókvíum er aðeins um 4 prósent af fiskeldi heimsins. Engin aðferð í lagareldi veldur þó meiri skaða á villtu lífríkinu með mengun, erfðablöndun við laxastofna og botnlausri þörf á veiðum á villtum fiski sem er notaður í fóður fyrir eldislaxana sem drepast í stórum stíl í sjókvíunum.

Þetta er forsíða helgartímarits New York Times.

Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga þekkir nú þegar það sem New York Times kallar „óhreina leyndarmál fiskeldisins“ í ítarlegri fréttaskýringu.

Fóður fyrir fiskeldi byggir á gríðarlegum veiðum á villtum fiski, er hörmuleg rányrkja á náttúruauðlindum og beinlínis minnkar fæðuframboð í hungruðum heimi.

Til að framleiða eina máltíð af eldislaxi þarf prótein og næringarefni sem myndu duga í að minnsta kosti þrjár til fjórar máltíðir fyrir fólk.

„Við sem höfum nýlega borðað eldisfisk tökum þátt í að skapa stigvaxandi umhverfiskreppu,“ segir í þessari mögnuðu grein New York Times.

Greinin er nýjasta dæmið um þá miklu vitundarvakningu sem er að verða í öðrum löndum um hversu stórkostlega skaðlegt laxeldi er ekki aðeins fyrir lífríkið, heldur líka heimskuleg og ósjálfbær nýting á gæðum náttúrunnar.