MAST var að birta tölur á Mælaborði fiskeldis í morgun yfir dauðann í sjókvíunum í september.

Þær eru skelfilegar: 1.040.293 eldislaxar drápust alls í fjörðunum fyriraustan og vestan. Þar af 693.167 á Austfjörðum hjá Kaldvík. Af þeim drápust rúmlega 600 þúsund vegna marglyttna en þær eru hluti af lífríkinu í fjörðunum fyrir austan.

Afföllin á landsvísu voru 3,8% í mánuðinum.

Á árinu hafa afföllin hjá Kaldvík verið 35 prósent, sem er nánast örugglega heimsmet í því að fara illa með eldislax. Til að setja þessa tölu í samhengi – hversu klikkuð hún er – þá hafa samtök norskra sérfræðinga/dýralækna kallað eftir að afföll fari ekki yfir 5 prósent á ári.

Afföllin hafa verið rúmlega fjórum sinnum hærri alla tíð í íslensku sjókvíaeldi en norsku sérfræðingarnir vilja að verði miðað við.
Eldislotan er tvö ár í sjó. Hér drepast rúmlega 40 prósent af eldislöxunum áður en kemur að slátrun. Nema hjá Kaldvík. Þar er dauðinn enn meiri.

Um 4,4 milljónir eldislaxa hafa drepist í sjókvíum við Ísland frá janúar til september.

Því miður virðist bókun Fagráðs um dýravelferð frá maí 2024 vera að rætast:

„Fagráðið varar við að sá hugsunarháttur nái að skjóta rótum á Íslandi að velferð fiska skipti takmörkuðu máli þegar kemur að lagareldi.“

Hvorki stjórnendur MAST né atvinnuvegaráðherra hafa brugðist við ítrekuðum bókunum fagráðsins um þetta efni
Þettta er úr fundargerð fagráðsins 26. febrúar 2026:

„Fulltrúi Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands vill minna á ályktun fagráðsins frá 15. maí 2024 um afföll í fiskeldi og skorar á yfirvöld að bregðast við af meiri alvöru þegar fagráðið sinnir því hlutverki sínu að vera til leiðsagnar og ráðuneytis um dýravelferðarmál. Í ályktuninni var óskað eftir því að fram færi á vegum MAST og Matvælaráðuneytisins ítarleg umræða um hvers konar afföll séu í raun ásættanleg í sjókvíaeldi. Í framhaldinu færi fram greining á vísindalegum gögnum um hvort slík ásættanleg afföll séu raunhæf við íslenskar aðstæður.

Á þeim tíma sem liðinn er frá ályktuninni hefur lítið breyst. Afföll eru mikil og aftur hefur komið fram lagafrumvarp þar sem markmið um velferð dýra eru ekki nægjanlega vel skilgreind, eins og sjá má í athugasemdum við frumvarpið. Ekki er hægt að sjá að við gerð frumvarpsins hafi verið farið í þá vinnu sem fagráðið taldi nauðsynlegt að ráðast í. Fulltrúar ráðsins tóku almennt undir mikilvægi málsins og frekari umræðu.“

Myndin sem hér fylgir sýnir eldislax eftir marglyttubruna og er tekin af Grethe Thorsheim, starfskonu norsku Hafrannsóknastofnunarinnar (Havforskningsinstituttet).

Mikilvægt er að muna að marglyttur eru hluti af lífríki Austfjartða. Þær bundu enda á sjókvíaeldi Samherja í Mjóafirði á sínum tíma (2007). Vísbendingar eru hins vegar um að sjókvíaeldi á laxi fjölgi marglyttum. Fagmiðillinn Salmon Business:

… It sounded like the beginning of a horror film. Thousands of stinging beasts invading Tasmania’s shores. Though it was all too real for salmon farmer Huon Aquaculture. The explosion of a moon jellyfish population hit them hard in February.

In an interview with ABC, Dr Lisa-Ann Gershwin explained that aquaculture, including salmon farming, could be making the issue worse.

…

“Jellyfish are a problem, and they are a problem that’s getting worse globally,” she told the publication. “I believe there’s every probability that aquaculture is making the jellyfish problem worse.”

“We do have good data from places overseas that shows aquaculture stimulates the growth of the very organisms that cause problems for the aquaculture industry,” she added.”It’s a vicious cycle, where the aquaculture is making the problem worse, that is then impacting them. In my mind, the bigger problem is that it’s not a one-off.”

Dr Gershwin explained that organisms grew naturally on any structure that was in the water, whether it be rocks, boats or jetties. “When a polyp dies, it’s replaced by more,” she said. This can put salmons farmers in a Catch 22 situation where if they scrape the creatures away from net pens, the fragments just create more colonies.

“More research needs to be done,” she said, adding there was evidence of it occurring overseas. “A reasonable hypothesis is that it could be happening here,” she said. …