Atvinnuvegaráðherra kynnti fyrr í haust áform um frumvarp til laga um hafeldi á laxi. Það er álit okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum að ekki komi til greina að hefja hafeldi (úthafs- eða strandeldi) nema niðurstöður ítarlegra rannsókna sýni afdráttarlaust að umhverfi og lífríki sé ekki hætta búin.
Í ráðgjöf norsku Hafrannsóknastofnunarinnar (Havforskningsinstituttet) til Atvinnuvegaráðuneytis og Umhverfis- og loftslagsráðuneytis Noregs (Nærings- og Fiskeridepartementet og Klima- og Miljødepartementet) varar stofnunin við að hafeldi á laxi geti skarast á við gönguleiðir villtra laxastofna og aukið lúsa- og sjúkdómaálag á þegar viðkvæma stofna. Sjá meðfylgjandi frétt af vef norsku Hafró fyrr í þessum mánuði.
Stofnunin bendir á að erfitt sé að meta nákvæm áhrif þar sem gönguleiðir villtra laxa í hafinu eru lítt þekktar. Stofnunin vill meðal annars nýta straumlíkön til að meta dreifingu lúsa um hafið og annarra sjúkdóma við val á staðsetningum fyrir mögulegt hafeldi.
Í ráðgjöf stofnunarinnar er vakin athygli á því að hætta sé á að stroklax úr eldiskvíum sem staðsettar eru langt úti á hafi dreifi sér yfir stórt landfræðilegt svæði og leiti í ár og vötn í öðrum löndum auk Noregs.
Mælt er með því að uppbygging hafeldis, ef til þess kemur, eigi sér stað í litlum skrefum til að hægt sé að fylgjast með umhverfisáhrifum og grípa til aðgerða ef kemur í ljós að þau eru neikvæð.
Engar slíkar rannsóknir hafa verið gerðar við Ísland.
Það er álit Íslenska náttúruverndarsjóðsins að hvorki skuli hugleiða útgáfu þróunarleyfa né skipuleggja möguleg hafssvæði án þess að niðurstöður slíkra rannsókna liggi fyrir.
Gríðarlegt magn af laxalús og fiskilús berst nú þegar úr sjókvíaeldi, margfalt meira en getur orðið við náttúrlegar aðstæður við Ísland. Opinberar stofnanir hafa ekki kannað útbreiðslu lúsarinnar utan fjarðanna fyrir vestan og vita því ekkert um hversu miklum skaða lúsafaraldurinn veldur á villtum laxi. Rannsóknir við Skotland sýna grafalvarlega stöðu.