Í nýbirtu rekstraruppgjöri Arctic Fish kemur fram að rekstrartap sjókvíaeldisfyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi (júlí, ágúst og september) nam um 600 milljónum króna (4,2 milljónum evra). Tapið jókst verulega frá öðrum ársfjórðungi.

Rekstrartap Arctic Fish nemur rúmlega 723 milljónum króna (5,3 milljónum evra) fyrstu níu mánuði ársins, eða rúmlega 2,6 milljónum króna að jafnaði hvern einasta dag frá 1. janúar til 30. september.

Í heild borgaði Arctic Fish 232 krónur (1,70 evrur) með hverjum 5 kg eldislaxi sem var slátrað á þessu tímabili.

Rekstrarafkoma er mælikvarði á hagnað eða tap fyrirtækis af reglulegri starfsemi þess, áður en tekið er tillit til fjármagnsliða, greiðslu af lánum og sköttum. Fyrirtækið hefur aldrei frá stofnun greitt tekjuskatt á Íslandi.

Staða Arctic Fish var svo slæm snemma árs 2025 að fyrirtækið var knúið til að auka hlutafé um fimm milljarða króna til að koma í veg fyrir að lánveitendur þess gjaldfelldu lán.

Rekstrartap Arctic Fish nam rúmlega 1,5 milljörðum króna í fyrra. Við þá tölu bætist að félagið greiddi samtals um 1,5 milljarða króna (10,5 milljónir evra) í hreinar vaxtagreiðslur og tengda fjármagnsliði á árinu 2025.

Ljóst er að vextir og afborganir af lánum verða enn hærri á þessu ári. Þegar mikið rekstrartap ársins bætist við er ekki óvarlegt að áætla að forráðamenn Arctic Fish þurfi að ráðast í aðra hlutafjáraukningu til að forða því að lánveitendur þess gjaldfelli lán.

Arctic Fish lokaði í fyrra fóðurstöð sinni á Þingeyri við Dýrafjörð þar sem níu heimamenn störfuðu. Myndin sem hér fylgir var tekin sumarið 2024 fyrir lokun fóðurstöðvarinnar.

Arctic Fish er með 10.000 tonna eldi í Dýrafirði og var heimamönnum lofað störfum. Þær efndir voru svona eins og lýst er í frétt Vísis. Þetta er sama þróun og varð í Noregi þar sem þessi fáu störf sem verða til í kringum sjókvíaeldið þjappast á fáa staði, oft víðsfjarri því þar sem eldið er stundað. Þetta ætti að vera víti varnaðar fyrir Seyðfirðinga.

https://www.visir.is/g/20252744741d/mikil-reidi-a-thing-eyri-vegna-flutnings-fodurstodvar-arctic-fish