Laxeldi er bókstaflega fæðuminnkunarkerfi þegar kemur að próteinframleiðslu á heimsvísu. Þetta er vegna þess að lax er rándýr ofarlega í fæðukeðjunni og eldislax er fóðraður með próteini sem gæti hæglega verið mannamatur. Laxeldi framleiðir hins vegar ógnarmikið af skít.

Fyrir hvert kíló af próteini sem sett er í fóður fyrir eldislax sitja í besta falli um 250 grömm eftir í þeim hluta fisksins sem fer til manneldis. Um 75 prósent af próteininu tapast í efnaskiptum fisksins, orkunotkun hans (fer í umhverfið sem uppleyst úrgangsefni og saur), eða endar í sláturúrgangi.

Til að fá 5 kg þungan sláturlax þarf um 7 til 7,5 kg af fóðri (þetta er blautvigt af laxi og þurrvigt af fóðri).

Rúmlega tveir þriðju af næringarefnum fóðursins sem fer í sjókvíarnar tapast í umhverfið. Iðnaðurinn kallar fasta hluta þessa úrgangs laxamykju og magnið af henni er gríðarlegt. Í fyrra var framleitt um 55.000 tonn af sjókvíaeldislaxi. Reiknuð yfir í blautvigt nemur laxamykjan frá því magni allt að 40.000 tonnum af saur og fóðurleifum sem renna beint í firðina okkar.

Þetta er gríðarlegt magn. Til að setja það í samhengi má til dæmis breyta því í rúmmetra. Ef þeim væri staflað ofan á hvern annan á 100 fermetra grunni (10 x 10 metra botn) yrði þessi laxamykjuturn 400 metrar á hæð eða rúmlega fimm sinnum hærri en Hallgrímskirkja.

Við þetta bætist svo:

  • Skordýraeitur og taugaeitur í lyfjafóðri gegn lúsaplágunni ( viðvarandi vandamál).
  • Þungmálmar í ásætuvörnunum á netapokunum
  • Örplast í gríðarlegu magni úr fóðurrörum, nælonnetunum, plastflothringjunum og öllu öðru plasti sem iðnaðurinn notar.

Þetta er mikið af skít og kemískum efnum í firðina okkar í boði norsku kauphallarfyrirtækjanna sem eiga sjókvíaeldið.

Hér er fjallað um afleiðingar sjókvíaeldis á norska firði: „Fisk forsvinner. Bunnen er råtten og livløs. Det foregår noe skummelt i flere av fjordene våre.“