Frábær ræðan hans Dýra sem ólst upp á Seyðisfirði og er þar með umsvifamikinn atvinnurekstur.
„Ég stend ekki hér til að tala gegn atvinnuuppbyggingu. Ég stend hér til að verja hana.“
Dýri Jónsson, Seyðfirðingur, flutti magnaða ræðu á Austurvelli á sunnudaginn þar sem hann setti hlutina í skýrt samhengi.
Dýri hefur byggt upp öfluga ferðaþjónustu á Seyðisfirði undanfarna tvo áratugi. Fyrirtæki hans veitir rúmlega 40 manns vinnu þegar mest lætur, þar af 12 í heilsársstörfum, og greiðir yfir 200 milljónir króna í laun á ári.
Hann spyr þeirrar spurningar sem stjórnvöld verða að svara: Hvað með öll þau störf, verðmæti og framtíðartækifæri sem við eigum á hættu að glata?
Þegar atvinnuvegaráðherra talar um að tryggja jafnvægi milli náttúruverndar og atvinnuuppbyggingar má ekki gleymast að náttúran er einmitt undirstaða fjölbreyttrar atvinnustarfsemi sem þegar hefur verið byggð upp á Seyðisfirði.
Atvinnusköpun á ekki aðeins að meta út frá þeim störfum sem kunna að verða til, heldur einnig þeim verðmætum og atvinnutækifærum sem kunna að glatast.
Takk, Dýri, fyrir að tala af svona mikilli skýrleika og þekkingu fyrir hönd þeirra miklu verðmæta sem eru í húfi ❤️