„Verdens hav har ikke nok fisk til å mette norsk oppdrettslaks.
Allur fiskur úthafa jarðar dugir ekki til að fæða norska eldislaxinn“.
Þetta er fyrirsögnin á fréttaskýringu sem var að birtast í hinu norska Stavanger Aftenbladet og lýsir krísuástandi hjá norska fóðurframleiðandanum Skretting.
„Við erum iðnaður sem er háður sjávarafurðum. Hvernig eigum við að vaxa þegar enginn villtur fiskur verður eftir í sjónum?“ spurði Leif Kjetil Skjæveland, starfsmaður Skretting í upphafi á fyrirlestri sínum á dögunum.
Þessi spá er ekki úr lausu lofti. Margfalt fleiri kíló þarf af villtum fiski í fóður fyrir eldislax en framleiðslan gefur af sér.
Til að framleiða eina máltíð af eldislaxi þarf prótein og næringarefni sem myndu duga í að minnsta kosti þrjár eða fjórar máltíðir fyrir fólk. Stór hluti af fóðrinu er fiskimjöl og olíur sem fást með veiðum á villtum fiski og hlutfall sojapróteins hefur farið hækkandi á seinni árum. Bæði væri hægt að nýta til manneldis ef vilji væri fyrir hendi.
Eldi á laxi er því einstaklega óhagkvæm nýting á próteini. Í hverri framleiðslulotu á eldislaxi er tekið að minnsta kosti þrefalt eða fjórfalt meira af höfuðstól náttúrunnar en framleiðslan sjálf gefur af sér.
Talsmenn laxeldisiðnaðarins reyna að rugla þessa mynd með því að bera saman blautþyngd af laxi við þurrþyngd á fóðri en allir Íslendingar sem þekkja muninn á ferskum fiski og harðfiski sjá að sjálfsögðu í gegnum þann málflutning.
Staðreyndin er einfaldlega sú að laxeldi er ekki fæðuframleiðslukerfi heldur ósjálfbært fæðuminnkunarkerfi sem dregur úr framboði næringarefna á heimsvísu.
Umfjöllun Aftenbladet má lesa hér (áskriftar krafist).