Þetta er hluti af auglýsingaherferð sem má meðal annars sjá á neðarjarðarlestarstöðvum London þessa dagana á vegum baráttusamtakanna Slingshot.

Þarna er vakin athygli á því ótrúlega framferði sjókvíaeldisfyrirtækja að senda á neytendamarkað eldislax sem hefur orðið fyrir stórskaða af völdum laxalúsar. Það er að segja þann hluta dýrsins sem lýsnar hafa ekki étið sig í gegnum roð og hold.

Þessi vinnubrögð eru fastur liður í þessum iðnaði. Þannig hafa norskir matsmenn komið hingað til lands í þeim erindagjörðum að flokka lúsétinn lax fyrir neytendamarkað.