Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, vill færa í lög að sjókvíaeldisfyrirtækin megi láta um 43 prósent af eldislöxunum drepast í sjókvíunum í hverri eldislotu án þess að eiga á hættu á að missa starfsleyfi eða borga svokallað „affallagjald“ í ríkissjóð.
Í lagareldisfrumvarpi Hönnu Katrínar er engin tilraun gerð til að taka á hrikalegum dýravelferðarvanda í sjókvíaeldi. Þvert á móti er frumvarpið klæðskerasniðið eftir fyrirmælum fyrirtækjanna til að þjóna sérhagsmunum þeirra, á kostnað eldisdýranna.
Við biðjum ykkur að dreifa þessu sem víðast. Þessu ákvæði í frumvarpinu verður að breyta.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að lögfest verði 42,3% aföll áður en kemur að greiðslu affallagjalds. 10% vegna skekkju við talningu plús vænt afföll fyrirtækjanna sjálfra sem eru um 20% á ári en hver eldislota er um tvö ár. Þér er velkomið að setja inn þína útreikninga hér Gunnar Davíðsson ef þú hefur annan skilning en við á þessu ákvæði frumvarpsins.
Þar er reyndar önnur grein til viðbótar sem virðist gulltryggja að fyrirtækin muni aldrei borga affallagjald sema hversu mikið af eldisdýrum þau láta drepast eða sleppa.